Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 5

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 5
1930. 115 Sjá þú húsin, sem hér hafa risið og hreysin þín fært um set: grjót og sement, vit og vinnu, er viku þeim fet fyrir fet. Hér stóðstu boginn og hrærðir og streittist, þín hönd hefur alt þetta gert. Og sviti þinn hefur í storkuna streymt og stuna þín vermt hana og hert. Og hver á að njóta þess? — Þú, aðeins þú, þetta er þitt ríki og hrós, handtök og orka þín hömruð í stein og húm, sem þú breyttir í ljós. Djóddu inn í hallirnar börnunum þínum, og biddu þau forláts á því, hve seint þau komust í kongsríkið sitt, og kystu ekki á vöndinn á ný. III. Landið bíður. — Mót ljóma sólar lyftir það heiðri brá. Landið bíður — og moldin mænir og mennina kallar á. Hvert gróandi strá, sem úr grjótunum brýzt, flytur gleðiboðskap og óð um framtíðardraum þinn, — fullræktað land og frjálsa og mentaða þjóð.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.