Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 19

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 19
'IÐUNN Putois. 129 >Pauline«, sagði ungfrú Zoe í byrstum rómi, »hvað kemur þetta sögunni af Putois við?« »Það kemur henni mikið við, frænka góð«. »Það get ég ekki séð«. Bergeret hafði ekkert á móti dálitlum útúrdúr í um- ræðunum, og hann svaraði dóttur sinni: »Ef allur óréttur hér á jörðu ætti að fá uppreisn, myndu menn aldrei hafa fundið upp nýjan órétt, þar sem á að bæta fyrir hinn. Hvernig ættu niðjarnir að geta dæmt alla hina framliðnu réttlátlega? Ekki er hægt að yfirheyra þá í þeim skuggaheimi, sem þeir eru horfnir í. Þegar sá tími kemur, að hægt er að sýna þeim rétt- :læti, þá gleymast þeir. En geta menn nokkurntíma orðið réttlátir? Og hvað er réttlæti? ]æja, frú Cornouiller varð þó að viðurkenna að lokum í eitt skifti, að mamma hafði ekki gabbað hana, og að ekki var hægt að hafa hendur í hári Putois. Hún örvænti þó ekki um að finna hann. Hún spurði ættingja sína, vini, nágranna, vinnufólkið sitt og búðar- mennina, hvort þeir þektu Putois. Það voru bara fáeinar hræður, sem svöruðu því, að þær hefðu aldrei heyrt um hann getið. Flestum fanst, að þeir hefðu séð hann. »Eg hefi heyrt nafnið*, svaraði eldabuskan, »en ég get ekki komið því fyrir mig, hvernig maðurinn sjálfur er í sjón«. »Putois! Jú víst kannast ég við hann«, sagði karl- inn, sem sá um viðhaldið á götunum, og klóraði sér á bak við eyrað. »En ég get ekki sagt um, hvers konar maður það er«. Ákveðnustu upplýsingarnar komu frá Blaise liðreiðustjóra. Honum sagðist svo frá, að hann hefði haft Putois í vinnu til að kljúfa brenni frá 19. til 23. október halastjörnuárið. Einu sinni fyrir hádegi æddi frú Cornouiller móð og másandi inn á vinnustofu föður míns. »Nú hefi ég séð Iöunn XIV. 9

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.