Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 33

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 33
IÐUNN Um tregðu. 143 alveg eins við um andleg efni sem líkamleg. Það sé >líf«-Ieysið — aldeyfa efnisins, er einn þeirra nefnir svo — þunginn í hinni dauðu náttúru, sem geri svo örðugt fyrir með allar framfarir, allan gróanda, eins og það sé tregðan, viðspyrnan, t. d. á móti sannleikanum, sem því valdi, að mennirnir vitkast seint og illa. III. Nú er það ekki tilgangurinn með línum þessum að gera neinskonar tilraun til þess að meta gildi tvíhyggju sem skýringar á metafýsiskum efnum. Það skal með öllu látið liggja milli hluta, hvort rökin séu meiri eða minni fyrir slíkri skoðun. Hitt er lesandinn beðinn að hugleiða,. hvort hugsunin um tregðu varpi nokkru ljósi yfir almenn viðfangsefni mannanna, og hvert sú birta bendi, sé hún nokkur. Hvað er tregða? Fyrir utan húsið, sem ég dvel í, stendur bíll á göt- unni. Færi ég út og reyndi að ýta honum af stað, gengi það treglega — það er tregða í bílnum. Væri hinsvegar vélin sett af stað, þá vitum vér, að hún þarf að beita meiru afli í fyrstu, heldur en eftir að hún væri alveg komin af stað og rynni með jöfnum hraða. Eftir að svo er komið, þarf vélin ekki fyrir öðru að hafa en að upp- hefja mótstöðu loftsins og núningsmótstöðu jarðarinnar. Þegar kraftur vélarinnar er jafn-mikill og þetta hvort- tveggja, rennur bíllinn áfram og til eilífðar með jöfnum hraða. En hvað er það, sem ýtir þá bílnum áfram, ef vélin gerir nú ekki meira en að upphefja núningsmót- stöðu götunnar og mótstöðu vindarins? Það er ekkert annað en »tregðan< í bílnum. Það er sama aflið, sem lætur bílinn hreyfast áfram með jöfnum hraða, og aflið, sem gerði svo erfitt fyrir, er vér ætluðum að ýta hon-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.