Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 62

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 62
172 íslenzkar samtíðarbókmentir. IÐUNN' að deila. ]ú, vissulega: »lífið alt er barátta um smekk* (Niefzsche). II. Mannlífið er náðarsamlega fjölbreytilegt. Hvert einasta af öllum börnum moldarinnar hlýtur gjafir, sem engum öðrum hlotnast. Þær gjafir eru furðu ólíkar. Og þó eru þessar gjafir skapaðar úr sömu frumefnunum: því, sem ljúft er, og því, sem er leitt. Veraldargæðum, veraldar- óláni. Andlegum gæðum, andlegu óláni. Hvergi er þess- um frumefnum blandað eins. En þegar skáldin eiga að segja frá hlutskifti og ör- lögum manna, þá vandast málið. Fyrsta atriðið í því vandamáli er það, hvort þeir eru fundvísir á efni, hvort þeir kunna að sjá listarefnið í glundroða lífsins. Hvort þeir kunni skil á hrynjandi atburðanna og hvort þeir sjái gegnum holt og hæðir í heimi sálarinnar. Hve mikl- um frumleika þeir séu gæddir, og frumleiki skáldsinsr það er hæfileikinn til að lýsa veruleikanum á persónu- legan hátt. Þó að segja megi, að fært sé að taka til meðferðar í skáldskap hvaða efni sem er, þá er það víst, að öll efni eru ekki jafn heppileg. Draumar og óbundið hugar- flug t. d. því að eins, að það hafi eitthvert alment gildi, þaðan sé útsjón um þau svæði, er sameiginleg séu sem flestum mönnum. Því persónulegra sem slíkt verk er, því meira fjarlægist það bókmentirnar, en nálgast að vera einungis plagg fyrir sálfræðinga. Þetta mun vera meginástæða þess, að ævintýri þau, sem birzt hafa í skáldritum íslendinga á síðari árum, hafa mistekist að meira eða minna leyti. Onnur aðalástæðan er sú, að höfundana hefur sýnilega skort vald yfir efninu, og þeir hafa ekki megnað að skapa því búning.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.