Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 75
IÐUNN Islenzltar samtíðarbókmentir. 185 að verða þungur og einstrengingslegur, þá er það keppi- kefli hins breytilega stíls að spegla ólgu og hreyfingu lífsins. ÖIl íslenzk skáld á síðari öldum hafa gert tilraunir í þessa átt. Og mörgum þeirra hefur tekist það sæmilega, misvel, eftir skygni þeirra á mannssálina, eftir fimleika þeirra til að gefa tilfinningunum mál. Þessi tvö atriði stílsins koma fram á æði misjafnan hátt hjá rithöfundunum; festan verður aðalatriðið hjá hinum eldri — eins og Einari Þorkelssyni — breyti- leikinn, tilfinningalífið hjá hinum yngri — svo sem »impressionisminn« í stíl Axels Thorsteinssons og Davíðs Þorvaldssonar. Hjá Hagalín koma fram báðar tegund- irnar; klassiskan frásagnarhátt með öfugri orðaröð (in- version) hefur hann, þegar frásögnin á að vera dvalar- laus, og lýst er hinum ytri veruleika. En þegar með þarf, víkur hann frá þessu og tekur upp huglægari stíl. Agætlega fer honum notkun alþýðlegra orða og orð- tækja; þau eru oft þrungin margskonar aukamerkingum og mismunandi keimum, sem gefa frásögninni einkenni- legan blæ, eins og ljós falli gegnum hverful ský. Þau eiga mikinn þátt í því, að ósennilegar sögur geta fengið undarlega sannfærandi veruleikasvip. Hér við bætist svo kýmnin og gleði góðs sögumanns yfir að segja frá. Það væri vandalaust að finna nóg dæmi þess, hvernig ekki ætti að skrifa. Það er erfitt að rita óbundið mál vel, og vanalega þarf mikillar vinnu við til að það takist. Það er því engin furða, að mikið sé til illa ritað á ís- lenzku, jafn erfið kjör sem höfundarnir eiga oft við að búa. (Ekki svo að skilja, að ég telji það neina afsökun á því, að menn skrifi illa, klaufaskapur heldur áfram að vera klaufaskapur, þótt vér vitum orsakirnar). En vér skulum yfirgefa það efni og hverfa að andstæðu þess,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.