Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 87

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Side 87
IÐUNN íslenzliar samlíðarbókmenlir. 197 þolleysið er nú eitt af meinunum. Hvað eftir annað kemur fram rithöfundur, sem gefur út eina bók — og þagnar síðan. Nú skal það að vísu ekki láð; fyrst er það enginn gróðavegur að rita fyrir jafn fámenna þjóð. I öðru lagi mun mörgu skáldi á Islandi vera innan- brjósts líkt og hann sé að tala við sjálfan sig, svo lítill gaumur virðist bókum nú vera gefinn (ástæðurnar eru skiljanlegar, en koma ekki síður hart niður á byrjend- um) — frægðarvoninni, sem hið unga skáld ól í brjósti, er svarað með þögn. Hinc illae lacrymae, af þessu koma endemin, hin óhollu auglýsingaáhrif í skáldskapnum. En — ekki fáir gefast upp, stundum (víst sjaldan!) af því að þeir fá harða, en maklega ritdóma. Stundum er það þjóðinni til gagns, þeir hafa meiri hæfileika til annars. En ekki sjaldan má búast við, að skáldin hefðu getað komist lengra, ef þau hefðu haldið áfram — og gert sér verulega far um að öðlast þekkingu og vald á list- arformi sínu. En reyndar er forspá oft mjög erfið út frá fyrstu bókinni. Gieðilegt dæmi um þróun fram á leið má finna hjá Hagalín: I fyrstu bók hans er ekki svo lítið af kvæðum með sama volkenda bragnum og tíðk- aðist með smærri spámönnum á þeim tíma (og síðar) — af þeim mundi vera erfitt að ráða, hvort Hagalín hlyti þann tvíræða frama að komast á bekk með sorgarljóða- skáldunum eða annað ætti fyrir honum að liggja. Annars væri víst ekki úr vegi, um leið og skilist er við þetta efni, að koma fram með þá spurningu, hvort ekki mundi heppilegra þeim mönnum, sem frá miklu hafa að segja, en hafa ekki tækifæri til að kynna sér erfið form og listaraðferðir, sem þar til heyra, að segja frá atburðunum eins og þeir voru, án þess að færa þá í annarlegt skrúð, t. d. lofa endurminningum að vera endurminningum og gera ekkert annað úr þeim. Þetta viturlega ráð hefur Theodóra Thoroddsen tekið upp í smásögum sínum, »Eins og gengurc, og farið vel á. Einav 01. Sveinsson.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.