Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Síða 90
200
Efnisheimur.
ÍÐUNN
sóknir sínar á eindum efnisins og lögum þeim, sem ríkja
í instu fylgsnum þess.
Levkippos er fyrirrennari Demókríts og hefir ef til vill
fyrstur manna komið fram með kenninguna um efnis-
eindirnar, en rit hans eru löngu týnd. Demókrítos var
uppi á 5. öld fyrir Krist, og eftir hann liggur meðal
annars efniseindakenningin, í því gerfi, sem hún hefir
borist til vor, en hún er þannig í stuttu máli:
Ekkert er til nema efniseindir og rúmið autt (the
vacuum) í millum þeirra. Þær hafa enga orsök og hafa
altaf verið til. Þær eru ósýnilegar og óskiftilegar, en
hafa rúmtak, þyngd og ýmsa lögun. — Hitt er talið
vafasamt, hvort Demókrítos ætli þær misjafnlega þéttar
í sér. — Efniseindirnar hreyfast. Hreyfing þessi er eilíf,
eins og efniseindirnar sjálfar. — Sumir álíta, að hann
hafi talið hreyfinguna koma af því, að þungar eindir
féllu ofan að léttum eindum, svo að hringiða yrði til.
Aðrir telja þó hæpið, að skýring sú sé komin frá honum.
Enn aðrir telja, að Demókrítos hafi skýrt rás efniseind-
anna þannig, að samkynja eindir leituðu saman af eðlis-
nauðsyn. En hvernig sem alt þetta hefir verið, þá taldi
hann, að af hreyfingu efniseindanna hefði heimurinn
orðið það sem hann er, og að hún væri orsök alls, sem
framtíðin ber í skauti sínu. —
Sál og eldur er sama eðlis og gert af léttum, mjúk-
um og hnöttóttum eindum. Útöndun og innöndun efnis-
einda þessara viðheldur lífinu. Sálin deyr því um leið
og líkaminn.
Kenning þessi, þó viturleg sé, útrýmir allri íhlutun
guðs. Demókrítos neitar því staðfast, að vitur vera hafi
skapað heiminn í öndverðu. Þetta stríddi gegn alþýðutrú og
skoðun margra heimspekinga. Nú, eftir meir en 2000 ár,
er kenning þessi úrelt orðin, í flestum greinum, sem vænta
má, en eigi að síður var hún langt á undan sínum tíma.
Jörð, vatn, Ioft og eldur. Vitrir menn andæfðu
kenningum Demókríts, þar á meðal Aristóteles. Löngu
fyrir daga hans hafði orðið til kenningin um frumefnin
fjögur: jörð, vatn, loft og eld. Aristóteles taldi hinsvegar
efnið eitt, en það var í upphafi samfeldur óskapnaður