Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 91

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 91
IÐUNN Efnisheimur. 201 og gat engri lögun á sig komið, nema fyrir tilkomu æðri máttar, og efnið var honum óþjált og erfitt. Frumefnin voru því öll frá sömu upptökum komin, og skyldleika þeirra mátti marka af einkennum þessum: ]örð er köld og þur, vatn er kalt og vott, loft er vott og heitt, eldur er heitur og þur. Hér er skyldleiki stig af stigi, og í höndum náttúrunnar mótuðust úr þessu öll önnur efni, hverju nafni sem nefnast. Kenning þessi settist í öndvegi, sökum álils Aristó- telesar, en kenningin um efniseindirnar gleymdist mönn- um í 2000 ár. Enn í dag lifa í minnum manna höfuð- skepnurnar fjórar: jörð, vatn, Ioft og eldur, og hefir sá þótt fávís maður, sem eigi þekti nöfn á þeim. Þvílíkt feiknavald hefir þessi andans jöfur fornaldarinnar haft yfir hugum manna alt fram undir vora daga. Vizkusteinninn. Þó að kenning Aristótelesar væri yfirleitt fjarri sanni, þá hafði hún þó fólginn í sér kynja- mátt, sem knúði marga til þess að leita nýrra, óþektra eiginleika meðal málma og annara efna. Þetta voru gull- gerðarmenn miðaldanna. Oldunum saman glímdu menn við þá þungu þraut, að smíða gull úr ódýrum efnum. Allar þær tilraunir mistókust, eins og vænta mátti, og um síðir komust menn á þá skoðun, að fyrst yrði að finna frumefni allra annara frumefna eða >hyle«, sem Aristóteles getur um, og að þá yrðu allar breytingar málmanna auðveldar. Dularefni þetta fékk síðar nafnið vizkusteinn og átti að vera töfragripur. Sá gat alt, sem átti hann. Enginn fann þó vizkusteininn, en eftir var trúin á skyldleika efnanna og margvísleg þekking á eðli málma og efnanna yfirleitt. Voru þá efnin, sem heimurinn er gerður af, skyld eða óskyld? Hafa þau komið hvert fram af öðru, eða hafa þau öll verið til frá öndverðu? Miðaldamenn vitnuðu til orða meistarans og töldu þau skyld, en vísindi 19. aldar skiftu mönnum í andstæða flokka. Sumir trúðu á alls- herjarefni, en aðrir á stöðugleik frumefnanna frá alda öðli. í aldarlokin var sú skoðun orðin almennust, að frumefnin væru eilíf, óskiftileg og óbreytanleg. En nú hallast ménn að þeirri skoðun, að frumefnin séu öll frá

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.