Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 95
IÐUNN
Efnisheimur.
205
vissri tölu af eindum annars efnis. Sama gildir, þó að
fleiri efni sameinist.
Efnasambönd eru geysi-margvísleg, en takast þó aðeins
með þeim efnum, er sækja á að sameinast. Millum þess
kyns efna er eitthvert seiðmagn, sem engan veg er skilið
til fulls. Hrífur það eigi nema efni nálgist svo mjög, að
bilið verði ómælanlega stutt í millum þeirra. Legir og
loft sameinast því stórum betur en fastir hlutir. En örva
má sameining efna með hitun, og stöku efni geta hrundið
henni af stað með návist sinni einni saman.
I efnasmiðju náttúrunnar er þrotlaus iðja. Stöðvast þar
aldrei sameining efna og sundrun. Efnabreytingar eiga
sér hvarvetna stað: í lofti og legi, í jörð og á og í sér-
hverri lifandi veru, alt frá því hún verður til og þangað
til hún er löngu dauð.
Sameindir. Menn hafa fundið, að efniseindir frum-
efnanna fara sjaldnast einar sér, heldur tvær saman, en
mönnum er þó eigi ljóst, hvað veldur því. Einstöku efni,
svo sem kvikasilfur og zink, er gert af efniseindum, sem
fara einar síns liðs, en það má fágætt heita. Ef vér
hefðum svo hvassa sjón, að vér gætum séð efniseind-
irnar sjálfar í efnablöndu af vatnsefni og súrefni, þá mund-
um vér hvarvetna sjá samstæður efniseinda — ýmist tvær
vatnsefniseindir eða tvær súrefniseindir. Nú er rafmagns-
neista hleypt í gegnum blöndu þessa, og verður þá snögg
breyting á öllu: Efnin sameinast. Onnur eða báðar þessar
lofttegundir hverfa þá, en vatn er komið í þeirra stað.
Þá er sú breyting orðin á, að eindir efnanna hafa tekið
sér aðra förunauta, svo að nú er sérhver eind súrefnis
tengd tveim eindum vatnsefnis. Þá er orðin til eiginleg
sameind. Þessi sameind — eða vatnið sjálft — hefir
táknið H2O í fræðimáli — en stafirnir eru dregnir af
Hydrogenium = vatnsefni og Oxigenium == súrefni, og
er þá táknið skiljanlegt.
Hverjum þeim, sem opnar bók í efnafræði, verður star-
sýnt á þessi tákn. Annað lítur þannig út: CaCO3, en
Ca = kalsíum og C = kolefni. Þetta táknar sameind
urítar eða efnið krít, og hefir hver sameind þess efnis