Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 13
Kirkjuritið.
KIRKJURITIÐ.
„Kirkjuritið“, sem nú hefur c/öngu sína, tekur beint
við a\f „Prestafélagsritinu“ og „Kirkjublaði“ og á að
koma í þeirra stað. Var ákveðið á síðasta aðalfundi
Prestafélagsins, að ritin skyldu sameinuð með þeim
hætti. Ýmsar orsakir liggja til breytingarinnar. Það er
kostnaðcirminna að gefa út eitt tímarit en bæði ársrit
og hálfsmánaðarblað, og auðveldcira að gjöra það vel úr
garði að efni og öllum frágangi heldur en tvö rit hvort
í sínu lagi. Ennfremur getur tímarit, sem kemur út við
og við, betur látið það fara saman, að birta ítarleg er-
indi og flytja kirkjulegar fréttir, innlendar og útlendar,
og greinar um þau mál, sem kirkjuna varða á líðandi
stund.
Markmiði „Kirkjuritsins“ er þegar lýst með nafni
þess og því, ctð það er gefið út af Prestafélagi Islands,
sem vill fyrst og fremst vinna að glæðingu trúarlífsins
með þjóðinni og að sem mestu samstarfi milli presta
innbyrðis, og presta og safnaða landsins. „Iíirkjuritið“
á að verða einn þátturinn i því starfi félagsins, alveg
eins og „Prestafélagsrilið" áður.
Ef til vill hefir aldrei, síðan kristni var lögtekin á
íslandi, verið meiri þörf en nú á kristilegum áhrif-
um á þjóðlíf vort.
Bein árás er hafin gegn trú og kristindómi, gjört gys
að bænarhug og tilbeiðsluþrá. Einkum er barist um
æskuna, reynt að rífa burt kristnina úr brjóstum henn-
ar og gróðursetja heiðni í staðinn. Barnssálunum á ekki
lengur að gefa „guðlegar myndir", heldur leiða þær inn
í „Surtshelli efnishyggjunnar“. Hversu óskemtilegt sem
1