Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 15
Kirkjuritið. Kirkjuritið. 3
gjarnt starf fyrir aðra og sjúlfsfórn er grundvöllur alls
siðgæðis og þess húss, er stendur, hvernig sem stormar
og fljót dynja á því. Lang fegurst birtist þetta í lífi Jesú
sjálfs. Kristur, krossfestur og upprisinn, mun verja þjóð-
ina falli, ef hún aðeins fær „skygnst á bak við tímans
tjald og tekið á hans minsta klæðafaldHann sem kom
ekki til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna
og tit þess að gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga,
hann á að verða konungur vor, frelsari vor, leiðtogi og
fyrirmynd. Það veitir þroskann á guðsríldsbraut.
Fyrir þessum miklu sannindum vill „Kirkjuritið“ láta
trúfræðilegar flokkadeilur þagna. Það kýs að leiða þær
hjá sér eins og „Prestafélagsritið“ gjörði, þótt það að
sjálfsögðu muni flytja bróðurlegar rökræður um trú-
fræðileg efni, er það telur þær iil þess fallnar. Nú er öll-
nm þeim, er unna kristni og kirkju, fylsta nauðsyn þess
að standa þétt í fylking saman og minnast þess, að það
er boðun kristindóms í verki, sem mun hafa mest áhrif
og verða sigursæl.
„Kirkjuritið" heitir á alla góða menn um liðsinni eftir
því sem þeir geta liver og einn, að þeir afli því sem
jlestra lesenda og kaupenda og sendi því ritgjörðir og
fréttir, eittlwað, sem örfar, leiðréttir misskilning, gefur
nýja útsýn, yljar hjartanu, upplýsir skynsemina og
styrkir og hvetur viljann.
Sex prestar lxafa þegar heitið ritinu sérstakri aðstoð
sinni til þess að létta undir með ritstjórunum, sem hlaðn-
lr eru öðrum störfum. Eru þeir úr öllum landsfjórðung-
am, og mun mikill styrkur að starfi þeirra. Þessir með-
starfsmenn eru: Séra Benjamín Kristjánsson, Tjörnum.
Séra Guðmundur Einarsson prófastur, Mosfelli í Gríms-
nesi. Séra Gunnar Árnason, Æsustöðum. Séra Óskar
Þorláksson prófastur, Kirkjubæjarklaustri. Séra Sigur-
geir Sigurðsson prófastur, tsafirði. Séra Sveinn Víking-
11 r Grímsson, Dvergasteini.
Um útsending ritsins og innheimtu mun annast fé-
1*