Kirkjuritið - 01.01.1935, Blaðsíða 18
Kirkjuritið.
OXFORDHREYFINGIN NÝJA.
Ágrip af sögu hennar.
Eitt af því, sem nú vekur mikla athygli í kristnilífi
heimsins, er Oxfordhreyfingin nýja, eða „Tlie Oxford
group movement“. Hún hefir á síðustu árum hreiðst óS-
fluga um lönd og álfur, svo aS undrum sætir. Þykir
vmsum, sem þar risi afturelding eftir stríðsnóttina og
muni hún eyða sortaskýjunum í lofti, svo að ekki komi
úr helskúrir yfir nútímakynslóðina enn á ný. Henni
fylgir sá máttur, að enginn fær dnlist, er virðir fyrir sér
opnum augum andlegu veðrahrigðin á vornm dögum.
Og einnig liér norðnr i höfnm eru þeir teknir að gefa
henni gætur, sem áhuga hafa á trúmálum og láta sig
nokkuru skifta stefnu þeirra og strauma í veröldinni
umhverfis oss.
Heitið Oxfordhreyfing á þessari stefnu er ekki alls
kostar liepjjilegt né réttnefni. Þvi að fyrst og fremst
lieitir þannig önnnr eldri stefna á Englandi, hákirkju-
leg, frá fyrri hluta 19. aldar, og svo er hreyfingin ekki
í fyrstu frá Oxford runnin, heldur er það Yesturheims-
maður, sem hrindir lienni af stað.
Frank Buchman heitir hann og er fæddur 1880 í
Pennsborg í Pennsylvaniu. Nam hann skólalærdóm
sinn þar vestra og lauk liáskólaprófi í guðfræði. Var
hann heldur óframfærinn á skólaárum og þótti ekki
mikið að honum kveða. Eldi mjög lengi af óframfærni
hans og löngu siðar, þegar tekið var að skrifa hækur um