Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 19
Kirkjuritið.
Oxfordhreyfingin nýja.
/
Oxfordhreyfinguna, bannaði hann um hríð, að nafns
síns væri þar við getið. Að loknu námi varð hann prest-
ur í verkamannasöfnuði i Filadelfiu, en lét af því starfi
eftir þrjú ár og setti á stofn hæli fyrir fátæka og um-
komulausa drengi. Honum féllu ágætlega samvistir við
þá og liafði á þá mikil og góð áhrif. En hann lenti fljótt
í deilum við fjárhaldsmenn stofnunarinnar, af því að
honum þótti þeir leggja drengjunum oflítið til. Harðn-
aði mjög á milli, svo að Buchman hvarf burt úr álfunni
sárgramur og hryggur 1908. Fór hann til Englands í von
urn það að verða þar fyrir andlegum áhrifum, sem
gætu styrkt trú hans, er honum fanst blakta á skari. Það
var persónuleg reynsla, sem liann vantaði, reynsla, er
veitti honum þekkingu á Ivristi.
Þessar vonir lians rættust. En það urðu þó ekki prest-
ar eða lærðir guðfræðingar, sem hjálpuðu honum, lield-
ur ólærð alþýðukona. Hann lieyrði liana tala fáin óbreytt
orð um kross Krists og kærleiksfórn við fámenna guðs-
þjónustu í lítilli sveitakirkju á Kumbaralandi. Og þau orð
vöktu hann af svefni. „Ég kom“, sagði hann sjálfur síð-
ar, „með klofinn vilja, eigingirni, sjálfsþótta og illar
hvatir — en svo sá ég sára sorgarsýn. Ég sá hinn
krossfesta, og óendanlega mikill þjáningarsvipur var á
andliti meistarans. Og mér varð ljóst í fyrsta sinni liyl-
dýpið milli mín og hans. Við það tóku að titra strengir
i hrjósti mér eins og sterkur lífsstraumur færi alt í einu
um mig, og svo var sem ég risi af dvala til nýrrar und-
ursamlegrar vöku. Ég fann ekki til þess lengur, að vilji
minn væri tvískiftur, allar áætlanir mínar og útreikn-
ingar, angur og úrræðaleysi hnigu i dá, en máttug til-
finningaalda hófst úr djúpum sálarlífs míns, samfara
vilja til þess að gefast algerlega Guði á vald, og liún
lyfti anda mínum frá landfestum eigingirninnar upp
yfir hyldýpið að krossinum“. Þessi reynsla gjörbreytti
lífi Buclnnans. Hann leitaði fyrst sátta við andstæðinga
sína og óvildarmenn. Hann skrifaði þeim öllum sam-