Kirkjuritið - 01.01.1935, Síða 21
KirkjuritiS.
Oxfordhreyfingin nýja.
9
mans. Og áður en 3 ár voru liðin frá komu lians, sóttu
1200 stúdentar Biblíu-lestrarfundi.
Buchman starfaði við háskólann til 1915. Þá fór hann
á vegum stúdentatrúboðsins til Indlands og Japans.
Dvaldi hann þar 1 ár. Næsta ár var hann guðfræðikenn-
ari og ferðaðist svo á ný um Austurlönd 1917—1919.
Hvar sem liann fór, laðaði liann menn að sér, eignaðist
trúnað þeirra og vakti hjá þeim kærleika til Krists.
Á næstu árunum eftir heimsstríðið varð honum það
Ijóst, að hvergi í enskumælanda heimi væri kristnilíf
jafn þróttlítið og í háskólum Bretlands og í Yesturheimi,
en hvergi heldur jafnmiklum kröftum á að skipa til
andlegrar vakningar, ef Kristur tæki þá í þjónustu sína.
Hvernig yrði vakinn kristindómsáhugi hjá þessum ungu
og gáfuðu mentamönnum? Til þess taldi hann vænleg-
astar samkomur með lieimilisblæ, „houseparties“, þar
sem kristnir menn segðu frá trúarreynslu sinni hispurs-
laust og hlátt áfram. Þá myndi andi Krists fara eldi um
sálir áheyrandanna.
Fjrrsta heimasamkoman hafði verið haldin sumarið
1918 í Kuling í Mið-Kína. Þar liöfðu um hundrað Kín-
verjar og kristnir útlendingar af ýmsum stéttum dvalið
saman í hálfan mánuð, sagt liverir öðrum frá dýrustu
trúarreynslu sinni og fengið mikinn styrk við það.
Tveimur árum síðar kom Buclmian lil Cambridge á
Englandi og liafði meðferðis hréf til sona allmargra
þeirra manna, sem hann hafði kynzt í Austurlöndum.
Þaðan fékk hann svo með sér 2 unga Englendinga í
heimsókn til háskóla í Bandaríkjunum. Næsta sumar,
1921, var haldinn í Cambridge sameiginlegur fundur
f}rrir háskólamenn hæði frá Oxford og Cambridge.
Ahrif iians urðu afarmikil. Boðskapur Nýja-testament-
isins varð fjölmörgum stúdentum nýr sannleiki og olli
gjörbreytingu á lífi þeirra. Nokkuru síðar var skrifuð
fyrsta bókin um lireyfinguna. Það gjörði Harald Begbie
rithöfundur, er hann hafði sannfærzt um gildi hennar