Kirkjuritið - 01.01.1935, Qupperneq 23
Kirkjuritið.
Oxfordhreyfingin nýja.
11
heimasamkomum, sem virðast hafa haft mest gildi.
Hann hefir unnið af dæmafáu þreki i trú á það, að á
þeim myndi birtast siguraflið, sem sigraði heiminn. Af
ferðum hans má t. d. nefna förina, sem hann fór fyrsta
eftir Cambridgefundinn. Hann valdi til farar með sér
4 trúnaðarvini sína, 2 Englendinga og 2 Vesturheims-
menn, og ferðuðust þeir saman eitt ár um Evrópu,
Egiptaland, Indland, Kína, Astralíu, Ameríku og svo aft-
ur heim til Englands. Hvarvetna varð góður árangur af
starfi þeirra, enda hafði Buchman þegar áður undirbúið
jarðveginn sumstaðar, einkum á Indlandi og í Kína.
Einn af þeim félögum, Samuel Shoemaker, varð síðan
prestur við kirkju i New York, sem kend er við Hausa-
skeljastað. Óx söfnuður hans dagvöxtum, og bárust frá
honum sterk trúaráhrif víðar og víðar. Auk venjulegra
guðsþjónustna í kirkjunni voru haldnar þar samkomur
með þeim hætti, að menn sögðn frá trúarreynslu sinni
hver af öðrum. Og á björtum sumarkvöldum eru þess-
konar fundir undir beru lofti fyrir þá, sem koma ekki
til kirkjunnar. Undrakraftur og blessun hefir fjdgt þessu
starfi og má nú telja þarna i New York höfuðaflstöð
hrej’fingarinnar i Vesturheimi. Enda er Slioemaker ekki
aðeins framúrskarandi sálnahirðir og kennimaður,
heldur einnig ágætur rithöfundur og hefir hann skrifað
sumar af merkustu bókunum um hreyfinguna.
Einna frægast liefir starf Oxfordlireyfingarinnar orð-
ið í Suður-Afríku. Ungur stúdent þaðan frá Rodes há-
skólahverfi hafði komið til náms i Oxford. Þar kyntist
hann hreyfingunni og varð mjög lirifinn af lífinu, sem
hún vakti; hann ákvað að reyna að gróðursetja hana í
ættlandi sínu og fór því heim í sumarlej’finu 1927 einn
síns liðs lil þess að segja vinum sínum frá henni og
undirbúa fyrir hana jarðveginn. Næsta ár sigldu 6 Ox-
fordstúdentar og 1 Hollendingur suður, en Howard Rose
prestur frá Oxford var foringi fararinnar. Þeir héldu
fyrstu heimasamkomuna skamt frá Port Elizabeth og