Kirkjuritið - 01.01.1935, Síða 28
16
Sigurður P. Síverísen:
Kirkjuritið.
livika frá settu áformi, hversu miklir sem erfiðleikarn-
ir voru. Um meira en 50 ára skeið hefir ha'nn int af
henili sitt frábæra og fórnfúsa starf meðal þeirra, er
verst voru settir í þjóðfélaginu. — Það var ánægjulegt
að kynnast öldungnum í liópi samverkamanna og vina,
lærðra manna og leikmanna, karla og kvenna. Varð
maður þess fljótt var, hvílíkrar virðingar og' ástar hann
naut meðal þeirra. Þeir litu upp til hans sem foringja
síns og fyrirmyndar, sem á löngum æfiferli hefði reynst
trúarhetja, en jafnframt hetjuhug auðsýnt kærleika, er
„hreiðir yfir alt, trúir öllu, vonar alt, umher alt“.
Aðalstöðvar Kirkjuhersins eru í stórhýsi skamt frá
Hyde Park, þar sem flestir og fjölmennastir útifundir
eru haldnir i Lo'ndon. Þaðan er liinu margþætta starfi
stjórnað, livort sem um starfsemi í höfuðborginni er að
ræða, eða víðsvegar annarsstaðar um landið, eða leið-
heininga er leitað l'rá nálægum löndum eða fjarlægum
álfum, þar sem líku fyrirkomulagi hefir verið lcomið á.
Allir þræðir í starfi Kirkjuhersins koma saman í hinni
stóru byggingu, sem nefnd er aðalstöðvar hersins.
Fari menn um það hús, hátt og' lágt, fær maður dálitla
hugmynd um, live starf Kirkjuhersins er víðtækt og marg-
þætt. Þar er skóli, sem uppelur leikmenn til starfsins,
bæði þá, er aðallega er ætlað að gefa sig að boðum
fagnaðarerindisins, og einnig hina, sem ætla að helga
líf sitt einhverri af hinum mörgu greinum hjálparstarf-
seminnar. Þar eru samkomusalir til guðsþjónusluhalds,
til nefndarfunda fyrir starfsmenn hersins, borðstofa til
daglegs borðhalds fyrir fasta starfsmenn og gesti, er
vilja kynnast starfseminni. Þar er stór deild fyrir út-
gáfustarfsemi hersins og þaðan stjórnað hlaðasölu og
bóka. Þá er mesti ljöldi af skrifstofum fyrir hinar ýmsu
deildir, og þaðan stjórnað trúhoðsstarfi og hinu marg-
þætta hjálparstarfi, meðal heimilislausra manna og
annara fátæklinga, meðal sjúkra manna og örkuml-
aðra, meðal siðleysingja og glæpamanna. Reynt er að