Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 42

Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 42
30 Magnús Jónsson: Kirkjuritið. af súlum og bogum. Eins og augað eygir í hálfrökkrinu þenjasf bogagöngin í allar áttir. Sjálfar súlurnar eru litlar, og þó að þær skifti hundruðum, eru varla tvær súlur eins. Þær eru úr ýmsum efnum og ýmislegar að lit og lögun. En allra furðulegastir eru bogarnir í loft- inu, úr hvítum og rauðum steinum á víxl. Sumstaðar flæðir birtan inn, en á öðrum stöðum er rökkur, og all þetta glitrar svo einkennilega fyrir augum manns, að einsdæmi mun vera. Er nú stöðugt unnið að þvi að énd- urreisa þetta forna furðuverk, en líklega fæst það aldrei aftur í sína upprunalegu mynd. Meðal annars er mar- maragólfið, sem nú er, fullu feti bærra en forna gólfið var. Hefir verið grafið niður að því á köflum, en ekki mun það vera tilgangurinn að grafa nýja gólfið burt að svo komnu. Um hádegisbilið fórum við af stað til Sevilla. Þar er stutt á milli, 3—4 tímar á lélegri eimlest. Logandi sól og skrælnuð jörð, beinharðir og mergþornaðir karlar á stöðvunum. Það er hreinasta furða, að gróður skuli endast hér yfir sumarmánuðina. 1 3—4 mánuði kemur aldrei dropi úr lofti, ekki skýflóki á himininn heldur sól — sól — sól. En olívutrén una vel hitanum og sækja ralcann djúpt úr jörð. Alt landið er freknótt af olívu- trjám, og maturinn smitar af olívuolíu. Á einstaka stað sjást vínekrur eða maís, og ef til vill eitthvað fleira. Iíaktusar, mannhæðarliáir, tindóttir, brotnir og óbermi- legir> girða víða járnbrautarsvæðið. En í fjarska fer að sjást til borgarinnar, og nú bregður fyrir turninum mikla, Giralda. Hann er auðþektur jafnvel þeim, sem sér hann í fyrsta sinn, eftir myndum og lýsingum. Hann sést fyrstur af borginni, og liann hverfur síðast. Dómkirkjan í Sevilla! Það er elcki ytra úllitið, sem gerir dómkirkjuna i Sevilla að einu af frægustu húsum í veröldinni, enda

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.