Kirkjuritið - 01.01.1935, Qupperneq 58
Kirk.juritið,
UM KIRKJULEGA
STARFSEMI Á LIÐNU ÁRI.
1. Embæltisstörf presta: Messur á árinu voru um 4
þús., eða að meðaltali tæpar 40 messur á livern prest.
Fermcl hafa verið 1800—1900 ungmenni, slcírð meira
en hálft þriðja þúsund börn, gift um (500 hjón jarð-
sungnir um 1200 manns. Hér við bætasl húsvitjanir
presta og barnafræðsla, manntal utan Reykjavíkur, og
margvíslegar skýrslugjörðir. Auk þess fást margir prest-
ar við kenslu lieima eða í skólum, prófdómarastörf og
eiga sæti i skólanefndum og barnaverndarnefndum.
2. Kirkjalegir fundir: Auk lögboðinna safnaðarfunda,
héraðsfunda og prestastefnu, hefir meir verið um kirkju-
leg fundarhöld á þessu ári, en nokkurt ár að undan-
förnu. Prestafélag íslands hefir gengist fyrir þessum
fundarliöldum: Aðalfiindi félagsins, er haldinn var á
Þingvöllum í byrjun júlímánaðar og stóð á þriðja dag;
kirkjufundi presta og leikmanna, er haldinn var á
Þingvöllum og' í Reykjavík dagana 3. og 4. júlí; full-
trúafundi presta og kennara (5. júlí; fundum í deildum
félagsins: Að Mælifelli 11. ágúst, á Norðfirði 26.—28.
ágúst, að Núpi í Dýrafirði 1.—3. sept. og að Ilvanneyri
2.—4. sept.; einnig var prestskvennafundur haldinn á
Þingvöllum samtímis aðalfundi Prestafélagsins. í sam-
bandi við deildarfundina voru haldnar guðsþjónustur
og erindi flutt fyrir almerining með umræðum á eftir.
Presta og sáknarnefndafundurinn, sem árlega hefir
verið haldirin i Reykjavík undanfarið, var að þessu
sinni um mánaðarmótin okt.-nóv. Hann var fjölsóttur.