Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 63

Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 63
KirkjuritiS. HeimsfriÖurinn og trúarbrögðin. 51 það hugfast, að vel sóttar kirkjur glæða safnaðarvitund- ina, og þess er ekki sízt þörf nú á dögum, þegar svo mörg þýðingarmikil verkefni ligg'ja fyrir kirkjunni og svo mörg öfl eru að slarfi, sem eru í andstöðu við krist- indóminn. Sízt mega nú þeir, sem unna málefni Jesú Krists, liggja á liði sínu. Auk guðsþjónustnanna hefir verið útvarpað allmörg- um erindum kristilegs og kirkjulegs efnis, nreðal annars í sambandi við kirkjulega fundi. Ljúft ætti öllum starfs- niönnum kirkjunnar að vera að stuðla að þvi, að út-. varpið flytji sem mest af kristilegum fróðleik og því öðru, sem verða mætti til þess að efla og glæða kristiu- dóm hér á landi. Friðrik Hallgrímsson. heimsfriðurinn og trúarrögðin. Dr. Shailer Mathews, l'orseli guðfræSideihlar Chieagoháskóla °g forseti „The Wórld Conference for International Peace thróugh Religion“ — sem er alþjóSahreyfing trúarbragðanna til áð vínna á móti ófriði — ferðaðist í haust sem leið til Austurálfu °g alveg umhverfis hnöttinn. í Japan var honum haldið sam- S8eti undir forsæti Sakatani baróns, og voru viðstaddir um átta- tíu menn af ýmsum trúarflokkum þar í landi, bæði Shintotrúár, Buddhatrúar, Konfúsiusjátendur og kristnir menn. En fulltrúár allra jaessara trúarflokka voru ásáttir um friðarmálin. Dr. Mát- hews ferðaðisl einnig víða um Indland, flutti fyrirlestra og tal- aði við nefndir jjessarar hreyfingar á ýmsum stöðuni. I aldi dr. Mathews, er hann kom til New-York og mætti á þingi frið- arvina þar, að starf þessara friðarnefnda um heim allan hefði stórkostlega þýðingu, og ef trúarbrögðin megnuðu ekki að fá menn til að slíðra sverð sin, megnaði það enginn máttur. Sem stendur er það aðalviðfangsefni friðarvinanna að viniia að því, óð ieita samvinnu sem allra flestra trúarbragða, til þess að þau geti unnið saman á móti ófriði. B. K. 4*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.