Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 72
Kirk.juritið,
ERLENDAR FRÉTTIR.
Frá Danmörku.
Á næstliðnu ári urðu mannaskifti á Sjálandsbiskupsstóli, sem
talinn hefir verið virðulegastur þeirra átta dönsku biskupsstóla
og jafnan verið skipaður fremstu andans mönnum hinnar
dönsku kirkju, enda hefir Sjálandsbiskup verið yfirbiskup
(,,primas“) kirkjunnar.
Síðan 1911 hafði Harald Ostenfeld (fæddur 18(54) þessa virðu-
legu stöðu á hendi og verður ekki annað sagt, en að hann hafi
sómt sér vel í henni, enda þótt jjar væri ekki um þann lær-
dómsljóma að ræða, sem prýtt hefir ýmsa, og jafnvel flesta,
fyrirrennara hans þar (t. d. Mynster, Martensen, Skat Rördam,
Þeder Madsen). Ostenfeld hafði áður en hann gerðist biskup,
verið prestur í einu af úthverfum Kaupmannahafnar (við Sol-
bjerg-kirkju), og fremur litið borið á honum. Það vakti þvi
undrun nokkra er Jakob Appel, þá kirkjumálaráðherra, kvaddi
Ostenfcld til þessa virðulega embættis eftir dr. P. Madsen lát-
inn, en hann leit svo á, og það með réttu, að eins og komið
væri högum Kaupmannahafnar, væri ekki minni þörf á, að
þangað veldist raunhæfur athafnamaður en lærdómsmaður.
Þess er þá heldur ekki að dyljast, að Ostenfelds biskups verð-
ur lengst minst sem hins raunhæfa leiðtoga — athafnamanns-
ins, og umfram alt verður hans minst í sambandi við „kirkju-
fjölgunarmál Kaupmannahafnar“ (Köbenhavns Kirkesag), sem
átti öflugan forvígismann, þar sem Ostcnfeld var, um 18 ára
skeið. Hann hafði á kandídatsárum sínum dvalist um eins árs
tíma á Englandi og sérstaklega í úthverfum Lundúnaborgar
kynt sér það starf, sem þar var unnið af kirkjunnar mönnum
til viðréttingar þeim mörgu, sem þar háðu stríð við óheillaöfl
lífsins. Hann varð því snemma „vinur smælingjanna“ og með lif-
andi áhuga á öllu, sem varðaði sannar þjóðfélagsheillir. Mætti
jafnvel telja hann til „kristinna jafnaðarmanna“. Hann var frá
byrjun formaður félagsskaparins „Dansk-islandsk Kirkesag“»
sem vinnur að eflingu vináttuþels með kirkju lands vors og
hinni dönsku kirkju. Hafði hann ásett sér að sækja ísland heim
á næsta vori, ef heilsa og lif leyfði. Á næstliðnu sumri sótti