Kirkjuritið - 01.12.1935, Page 9

Kirkjuritið - 01.12.1935, Page 9
Kirkjuritið. Helgi mannlífsins. 403 margt um kærleika og frið, vér sjáum hann gera að veru- leika í lífi sínu alla þá fegurslu drauma og þær glæst- ustu hugsjónir, sem mannkyn þessarar jarðstjörnu hafði órað fyrir á undan koniu lians, þá dýru drauma, sem mannkynið hefir síðan í nítján aldir verið að dreyma, og aðeins fáir útvaldir hafa gelað sýnt brotasilfur af í sínu lífi. Yér heyrum hann kenna um kærleik, frið og' trú, en livaðan stafar þessi óviðjafnanlega ómdýpt liörpu hans? Hví nær hann hærri tónum en allir hinir, sem liörpu iífsins liafa slegið á vorri jörð? Það er fyrst og fremst vegna þess, að hinn lieilagi sveinn, guðssonurinn, átti dýpri sannfæring um órjúfanlega lielgi mannlegs lífs en allir hinir, sem leiðtogar liafa viljað gerast. Hugsjónir hans um lakmark mannlegra sálna eru öllum öðrum hug- sjónum hærri, og þessa liugsjón liafði liann þrek til að boða með hinni karlmannlegustu djörfung vegna þess, að hann trúði, trúði því afdráttarlaust, að þrátt fyrir sorga- og syndamistur, væri hver mannleg sál helgur dómur, með hæfileika, að vísu óþroskaðan, en hæfileika þó, til að lifa helgu lífi. Jólin eru heilög liátíð — fæð- ingarhátíð hans, sem hefir hreinsað og lielgað mannlegt líf, og' mun þó enn, síðar hreinsa það, lielga og hefja það upp í langtum æðra veldi. En vegna alls þessa eru jólin einnig hátíð í öðrum skilningi, þau eru hátíð hins heilaga í mannlegum sálum, og það er ekki sízt vegna l^essa, að þau hafa svo knýjandi boðskap að flytja vorri kynslóð. Því að eitt af hinum greinilegustu hnignunar- og sjúkdómseinkennum þessarar aldar er hið sívaxandi virðingarleysi fyrir helgidómum mannlegra sálna, já víða hinn fullkomnasti skortur á tilfinningunni fyrir órjúfanlegri helgi mannlegs lífs. Vér erum — allflest börn þessarar aldar — svo rótlaus í lífi voru, vér eig- um mörg svo þróttlausa og lítilsiglda lífsskoðun, jafn- vel þeir, sem annars telja sig i orði kveðnu afdráttar- laust játa sannindi kristinnar trúar. Ef vér ættum fasl- mótaða lífsskoðun Jesú Ivrists, þá værum vér ekki lengi 26*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.