Kirkjuritið - 01.12.1935, Page 29
Kirkjuritið.
Æskuminningar.
423
Sonur Guðmundar Ólafssonar var Guðmundur bók-
bindari, sem stofnaði söngfélag í Stykkishólmi, um eða
litlu eftir 1870. Var það með fyrstu söngfélögum þessa
iands. Guðmundur bókbindari var sem faðir hans ágætur
söngmaður.
Ég hefi nú hér að framan minst á söng í Borgarfirði
og víðar á 19. öldinni. Síðustu áratugir þeirrar aldar eru
mesta hieytingatimabilið i sögu héraðsins, ekki síður í
söng en öðru. Þá leggjast niður með öllu Grallaralögin,
sem eldri tíðar menn unnu og kunnu. Unga fólkið æskir
Jtá annars nýrra og er því að aukast þekking á, að söng-
urinn þarfnist umbóta, sem heimilin höfðu þá fæst tök
á að veita. Fólkið fór að verða feimnara, þegar það sann-
færðist um það, livað lítið það kunni. Söngur i heimahús-
um lagðist niður smátt og smátt, messum fækkaði og
sömuleiðis brúðkaupsveizlum. Alt studdi að þvi, að nú
fækkaði óðum þeim mönnum, sem þorðu að syngja í
heyranda ldjóði. Kom nú sú breyting að fleiri þögðu en
áður, en þeir námfúsu og sönghæfustu fóru svo fljótt
sem tök voru á, að leita á þá staði, sem fræðslu var að
fá í þeim efnum, sem helzt var í Reykjavík.
Kristleifnr Þorsteinsson.