Kirkjuritið - 01.05.1936, Side 8
182
Stanley Jones:
KirkjurititS.
og tóku landið. Loks leituðu eyjarskeggjar á náðir ræn-
ingjaflokka. Þeir brugðust skjótt við og ráða nú lögum
og lofum á Ceylon. Það getur orðið hættulegt að leita
fulltingis þess, er menn vilja ekki búa við að staðaldri.
Lara að Rússar þurfi ekki að kenna sáran á því.
„Mitt ríki er ekki af þessum heimi“, sagði Jesús
Ivristur. Það á að verða stofnsett bér á jörð af himnesku
valdi, en ekki dýrslegu og lágu. Hann kendi oss að biðja:
Komi ríki þitt. Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himn-
um. Ekkert annað en göfgustu og æðslu öflin fá kom-
ið því á.
„Hatri þrungið reiðióp vekur okkur fögnuð“, segir
einn af rithöfundum kommúnista og bætir svo við: „All-
ur kjarninn í kenningum Lenins felst í þessum orðum“.
Sjálfur mælti Lenin: „Vér verðum að kljúfa hauskúpur
manna til þess að koma friði á.“
Alt slíkt, allur liernaðarandi og ofbeldis livar sem er,
er í beinni andstöðu við kenningu Krists. „Slíðra þú
sverð þitt‘, sagði hann; „því að allir þeir, sem grípa til
sverðs, munu farast fyrir sverði“. Hann kendi að beita
vopmun góðviljans. Heimurinn verður að fylgja dæmi
bans, eða farast ella. Gegn illu skal ekki berjast með
illu, Iieldur á æðri bátt. Þetta hefir Gandhi gjörl á síð-
ustu áratugum og orðið undursamlega mikið ágengt. Og
á Ungverjalandi sultu þúsund verkamenn niðri í nám-
unum til þess að sýna, að laun þeirra væru of lág til
þess að þeir gætu dregið fram lífið á þeim, og fengu
þannig miklu stærri sigur og réttarbætur, en unt liefði
verið með öðru móti. Það á skylt við kross Krists að
vilja lieldur taka á sig kvöl en baka öðrum.
Þegar andi Krists veitir hreyfingu kraft, þá ver hann
liana þess, að hún grípi lil ógöfugra aðferða og vopna.
En jafnframt kemur hann í veg fyrir j)að, að hún verði
bundin bókstaf eða vanatrú. Hann samdi enga fasta
trúarjátningu, né heldur fyrstu lærisveinar hans. „Hann
gjörði oss hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála“, eins og