Kirkjuritið - 01.05.1936, Page 10

Kirkjuritið - 01.05.1936, Page 10
184 Stanley Jones: Kirkjuritið. Snemma á öldum kristninnar gjörðu kristnir menn svo mikið fyrir fanga, að það lagaboð var látið út ganga, að eng'ir mættu létta þjáningar fanga með því að færa þeim mat og enginn mætti sýna þeim miskunn, sem væru að verða hungurmorða í fangelsum. A líkan hátt hanna nú kommúnistar kirkjunni alt þjóðfélagslegt starf. Þeir ótt- ast það ósjálfrátt, að neistarnir af kærleikseldi kristin- dómsins verði blásnir út i hjarta loga. Andi Krists gefur kraftinn til þess að hrinda í fram- kvæmd stefnuskrá hans. Lærisveinar lians gátu sagt: „Andi droltins er yfir oss, þess vegna eru fátækum flutt fagnaðartíðindi“ — sameign þeirra var fús og frjáls, svo að enginn leið neyð meðal þeirra — „handingjum var l)oðuð lausn“ — allur stéttamunur livarf, — „blindir fengu sýn“ — máttug alda var risin til lækningar sjúkdóm- um, — „þjáðir voru látnir lausir" — menn hlutu frelsi og fyrirgefningu, fagnaðarárið var komið ný von gefin sjúkum og sárþreyttum heimi. Nýtt lif var að hrjótast fram. En trúarjátningar, kirkjukreddur og lielgisiðir hafa bælt það niður. Það getur hafist aftur og náð mik- illi vaxtarhæð — og það skjótt. NÆSTU SPORIN. Ilvernig getum vér unnið að stofnun guðsríkis á jörðu? Það sýndi Kristur oss. Guðs riki var þar, sem hann var. Samfélag lians við Guð og menn, miskunn lians við sjúka menn, svnduga og snauða, og traust á þvi, að þeir gætu hafist aftur, liirli oss guðsríkisstarfið. Kross hans sýnir oss, hvernig hann stendur gegn hinu illa; hann sigrar hatur með kærleika, ræðst á móti illvilja með vopnum óþrotlegs góðvilja, þrýstir því öllu að hjarta sér og skilar aftur sem endurleysandi kæx-- leika. Hann sigrar heiminn með krossi sínum. Hann tek- ur innilegan þátt í kjörum mannanna, tekur evmd þeiri’a og synd á sig. Það er eðli guðsríkisins.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.