Kirkjuritið - 01.05.1936, Síða 11
KirkjuritiS.
Kristur og kommúnisminn.
185
Þannig er Guðs riki hvorki draumur né hillingaland,
heldur staðreynd. Þegar oss er sagt, kristnum mönnum,
að stefnuskrá kristninnar að umbótum og' endursköpun
heimsins sé fjarri öllum sanni og óvísindaleg, þá svör-
um vér, að hún sé vísindalegri en stefnuskrá Marxism-
ans. Hin síðarnefnda á eftir að sanna reynslugildi sitt,
en stefnuskrá kristninnar stóðst framan af próf reynsl-
unnar í félagslífinu. Fvrirkomulagið í frumsöfnuðinum
þarf að hreiðast um alla jörð. Það er hið æðsta, sem vér
vitum, og oss nægir ekki heldur neitt minna.
Hjá Jesú fóru algerlega saman kenning og fram-
kvæmd. Hann lifði þannig, að breytni hans átti að vera
algild lífsreynsla. Hann auglýsti stefnuskrá sína og
sagði, að eftir henni skyldi lifa nú í dag.
1. Hið fyrsta sem vér getmn gjört er þetta: Vér byrj-
um nú þegar að lifa eftir þessari stefnuskrá hvert fyrir
sitt teyti. Það er ekki unt að bíða eftir því, að allir verði
tilbúnir til þess. Vér getum leilast við að lifa sjálf i
vorum verkaliring eins og guðsríki væri aftur komið
með krafti. Þannig munum vér fá greitt því veg og birt
eitthvað af eðli þess. Fátækum skal boða fagnaðarer-
indi. Vér eigum því ekki að afla oss meiri fjármuna
en svo, að vér verðum hæf til þess andlega, siðferðislega
og efnalega að vinna fyrir guðsríki. Lengra megum
vér ekki fara. Vér eigum að marka oss landamæralínu
í lífi voru hvert um sig fyrir augliti Guðs. Vér höfum
rétt á þvi, sem vér þörfnumst til starfsins fyrir guðs-
ríki. En förum vér lengra, þá erum vér komin yfir í land
annara. Alt hitt heyrir til bræðrum vorum og systrum.
2. Vér getum myndað félög til þess að læra og iðka1
líf hins nyja ríkis. Og hvert þeirra um sig á að vera
smámynd af guðsriki. Heilar kirkjudeildir skyldu á-
kveða að verða slík félög.
3. Þótt vér væntum þess, að kirkjan verði kjarni rík-
isins, þá megum vér engan veginn einskorða það við
hana. Vér bjóðum alla þá velkomna til samstarfs, sem