Kirkjuritið - 01.12.1938, Blaðsíða 33
KirkjuritiÖ.
HJARTABLAÐ TRÚAR VORRAR.
SÝNODUSERINDI.
Eftir dr. Jón Helgason biskup.
Trúin á Jesúm Krisl er dýrasti arfurinn, sem oss
hefir borizl frá frumkristninni fyrir meðalgöngu kristi-
legrar kirkju. En frumkristnin gerir þessarar trúar grein
í elztu kristilegu bókmentunum, sem eru til, ritum Nýja
testamentisins. Og frá upphafi kristninnar í heiminum
hefir Jesús Kristur verið hyrningarsleinn trúar vorrar
og trúin á Jesúm Krist verið sjálft hjartablað kristnu
trúarinnar. En sameiginlegt einkenni allra rita Nýja
testamentisins er einmitt vitnisburður höfimdanna um
þetta hjartablað, eins og þeir hafi tileinkað sér það.
Yfir þessari arfleifð hefir kristileg' kirkja vakað alt
tram á þennan dag, svo sem dýrasta hnossinu, svo sem
dýrlegustu auðlegðinni, sem hún hefir að miðla börn-
om sínum, og það alt að einu þótt þessi hyrningar-
steinn trúar vorrar hafi á öllum tínium jafnframt
verið mörgum ásteytingar-steinn og hneykslunar-hella.
Deilurnar, sem staðið liafa á öllum öldum innan kirkj-
únnar, hafa þó ekki snúist um það, hvort trúin á Jesúm
Krist væri hjartablað kristnu trúarinnar, heldur um það,
hvernig menn gerðu sér réttasta grein þessarar trúar
eða hvaða skilningur væri réttastur á þessu mikla meg-
inatriði trúarinnar.Þessar deilur, sem hér hafa átt sér
stað, eru i sjálfu sér ekki neitt, sem menn þurfi að
imeykslast á. Þær standa miklu fremur í hinu eðlileg-
asta sambandi við alt eðli trúarlífsins. Sérhverjum trú-
uðum manni er innrætt lifandi hvöt til þess að gera sér