Kirkjuritið - 01.12.1938, Blaðsíða 55
Kirkjuritið.
HIMNAFÖRIN.
ATHUGASEMDIR MEÐ MYNDINNI.
Lúkas guðspjallamaður segir á tveim jstöðum frá himnaför
Jesú. Styttri frásögnin er í síðasta kapítula guðspjallsins, en hin
er í fyrsta kap. Postulasögunnar. Mark. segir einnig, mjög stutt,
frá himnaförinni.
Eftir báðum frásögnum Lúkasar, fór atburður þessi fram á
Olíufjallinu, rétt hjá Jerúsalem. Er ferðamönnum enn sýndur
staðurinn á Olíufjallinu, þar sem Jesús stóð, er hann varð upp
numinn.
Lúkas segir: „Og hann fór með þá í nánd við Betaníu, og hann
hóf upp hendur sínar og blessaði þá. Og meðan hann var að blessa
þá, skildist hann frá þeim og varð upp numinn til himins.“ Postula-
sagan bætir við: „Og ský nam hann frá augum þeirra."
Myndin á að sýna þetta augnablik, er Jesús lyftir höndum og
blessar þá. En skýið, sem nam hann frá augum þeirra, er að
myndast. í baksýn sést borgin.
Matteusarguðspjall segir ekki bcinlínis frá himnaförinni. En
niðurlagsorð þess eru svo dásamleg, að þau verða aldrei skilin
frá þessum skilnaðaratburði. Ef Matteus segði ekki, að þau væru
töluð á fjalli í Galíleu, myndi enginn hika við, að telja þau síð-
ustu skilnaðarorð Jesú við þessa jörð og lærisveina hans:
„Sjá, eg er með yður alla daga, alt til enda veraldarinnar.“
Myndin er því raunverulega gerð um þetta dásamlega fyrirheit.
En hún er staðsett á Olíufjallinu vegna Lúkasarfrásagnanna.
*
Ef til vill langar einhvern til þess að vita, „hver er hver“ af
postulunum ellefu. En um það verður hver af hafa sína skoðun,
enda sjást ekki andlit þeirra allra. Þó eru það vafalaust Pétur
°g Jóhannes, sem mest ber á, á miðri myndinni, Jóhannes sá
vngri og ákafari. Pétur krýpur í tilbeiðslu.
Myndin er gerð sem altaristafla, og er 1 X l/i meter að stærð.
M. J.