Kirkjuritið - 01.12.1938, Side 39

Kirkjuritið - 01.12.1938, Side 39
Kirkjuritið. Hjartablað trúar vorrar. 409 bera þá líka fyrir sig opinberun, svo sem fyrstu upp- spreltu sína. Gildi, göfgi og tign trúarbragðanna, fer eft- ir gilcli, g'öfgi og tign þeirrar opinberunar, sem þau eru sprottin upp af. En hvað er opinberun? Opinberun er svar Guðs við spurningum mannssálarinnar um síðustu rök, orsök og uppruna tilverunnar. Með opinberuninni svalar guð þorsta mannssálarinnar eftir ábyggilegri vitn- eskju um þessa síðustu orsök tilverunnar. Guð kemur þar sjálfur á móti manninum, til þess að leit hans eftir Guði fái borið ávöxt, verði eitllivað meira en beiðni án á- beyrnar, leit án þess að finna, liögg á dyr án þess að Iokið verði upp, árangurslaust Sisyfus-strit. En þótt ég segi, að öll trúarbrögð bj’ggi að einhverju leyti á opin- berun, þá sé mjög fjarri mér, að gera þeim öllum jafn bátt undir höfði. Því er sem sé svo farið, að Guð hagar í vísdómi sínum opinberun sinni ávalt eftir þroskastigi mannanna. Hann birtir þeim aldrei meira en þeir eru viðurtækilegir fyrir. Virðum vér fyrir oss hina fornn trúarbragðafrömuði utan gyðingdóms og kristindóms, þá á það jafnt heima uni þá alla, að sú opinberun, sem þeim veitlist, var algerlega sniðin eftir þroskastigi þeirra sjálfra og viðurtækileika þeirra, sem opinberunin var ætluð. Lítum vér því næst til spámanna Gamla testa- mentisins, allar götur frá Móse lil Malakíasar, sem voru réttnefndir opinberunarmiðlar, þá verður Iiið sama uppi á teningnum hjá þeim öllum, að opinberunin, sem þeim blotnaðist, var sniðin eftir ])i-oskastigi þeirra sem hún var sérstaklega ætluð. Allir bafa þeir opinberun að flytja; en á mismunandi stigi alt eftir þroska þjóðar sinnar á hverjum tíma. Vér sjáum í þessu vísdóm Guðs. Hann er ekki hráðlátur í afskiftum sínum af mönnunum, svo að hann dembi vfir þá fræðslu um sig, sem þeir eru ónæm- ir fyrir. Hann getur beðið, kynslóð eftir kynslóð, eftir þvi, að lijörtu hinnar útvöldu þjóðar nái þeim þroska, sem er skilyrði þess að geta veitl viðtöku fyllingu opinber- unar hans. Guðleg opinberun á sér sinn þróunarferil,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.