Kirkjuritið - 01.08.1939, Side 20
234
.T. H.: Við vígslutöku.
Ág.-Sept.
þetla á lijarta, er ég framkvæmi mitt síðasta biskupsverk
með því að vígja þig til biskups yfir Islandi. Og ég legg
þér þetta því fremur á hjarta sem ég veit, að leyndardóm-
urinn í lífi og slarfi allra þeirra manna á öllum tímum,
sem mestan liöfðu áhugann á málefni .Tesú Krists og mestu
fengu afrekað riki Guðs og Krisls lil eflingar, — yar á-
reiðanlega fyrst og fremst þessi, að þeim liafði lærst það
að hallast í trúnni upp að hrjósti Jesú.
Þetta vildi ég þá líka láta vera megininntak allra minna
óska og liæna þér til lianda sem eftirmanni minum á bisk-
upsstóli íslands, að líf i innilegu samfélagi við frelsara
vorn .Tesúm Krisl sem drottin þinn og konung verði ekki
aðeins til þess dag l'rá degi að fullkonma skilning þinn á
persónu lians og starfi, heldur einnig um leið til þess að
fylla þig sjálfan öllum fögnuði og friði í trúnni og
auðga þig að voninni í krafti heilags anda: Von hjálpræð-
isins, sem oss er geymt i himnunum, von eilífa lífsins
í sælusamfélagi við frelsara vorn og drottin Jesúm Krist
og þá einnig að voninni um árangur af starfi þínu sjáli-
um þér lil uppörvunar, kirkju þjóðar vorrar lil sannrar
eflingar, en fyrsl og síðast Guði lil lofs og dýrðar fyrir
drottin vorn Jesúm Krist.
Amen.