Kirkjuritið - 01.08.1939, Side 37
KirkjuritiS.
Prestastefnan.
251
Telur prestastefnan rétt, að leitað sé fyrst upplýsinga hjá
prestum landsins um, hverir sálmar séu notaðir við guðsþjón-
ustur og kirkjulegar athafnir, svo og um sálma, er trúrækið
safnaðarfólk þeirra liafi einkum mætur á, að jjvi er þeim sé
kunnugt, og sendi prestarnir skýrslur þessar biskupi, ásaml til-
lögum sínum“.
Með 29 atkvæðum gegn 8 var ennfremur gjörð svolátandi
samþykt:
,,I tilefni af tilmælum kirkjumálaráðherra um, að ])restastefn-
an kjósi 2 menn í nefnd til að undirbúa nýja útgáfu sálmabókar-
innar, samþykkir prestastefnan að vísa málinu til kirkjuráðs til
afgreiðslu“.
Ýmsir prestar litu svo á, að endurskoðun sálmabókar heyrði
að öllu til innri mála kirkjunnar, sem bæri undir prestastefn-
una og kirkjuráðið, og l)ar séra Þorsteinn Briem prófastur því
fram ])essa tillögu:
„Með því að kirkjuráð hefir skv. lögum samþyktaratkvæði
og ákvörðunarrétt um mál þetta ásamt prestastefnunni, en meiri
hluti ])ess og kirkjumálaráðherra er fjarverandi, þykir verða að
fresta að þessu sinni kosningu nefndar lil að vinna að endur-
skoðun sálmabókarinnar. Og beinir prestastefnan þeirri ósk
sinni til ráðsins, að það leggi tillögur sínar þar að lútandi fyrir
Kirkjuleg menn-
ingarmiðstöð
næslu prestastefnu“.
En ])essi tillaga var feld með 23 atkv. gegn 17.
Séra Gísli Skúlason flutti framsöguerindi um
nauðsyn þess, að sjóði Strandarkirkju yrði
varið til þess að koma upp kirkjulegri menn-
ingarmiðstöð hér á landi. Lagði hann l)að til, að prestastefnan
lýsti yfir áliti sínu, sem hér segir:
„Prestastefnan lýsir yfir því, að hún telur rétt og sjálfsagt, að
•sjoði Strandarkirkju í Selvogi verði varið þannig, að liann komi
að sem beztum og víðtækustum notum bæði kirkju- og kristin-
dómshaldi í Selvogi og kristnihaldi og menningu landsins í
öeild sinni.“
Á grundvelli þessarar yfirlýsingar var siðan, eftir miklar um-
ræður, borin upp og samþykt svofeld tillaga frá frummælanda:
„Fyrir því ályktar prestastefnan að skipa 7 manna nefnd til
þess á þessum grundvelli að:
1) Gangast fyrir þvi, að Strandarkirkju verði með lögum skipuð
sérstök stjórnarnefnd, er hafi yfirstjórn á öllum fjármálum henn-
ar, ráði sérstakan prest til Strandarsóknar, þegar henni ])ykir
timi lil kominn, og geri þær ráðstafanir, er hún telur nauð-
synlegar, alt án frekari íhlutunar löggjafarvaldsins.