Kirkjuritið - 01.08.1939, Page 61
KirkjuritiS.
Séra Þórarinn Þórarinsson.
275
Ás í Fellum, og þjónaði hann síðan því prestakalli, unz
liann lét af embætti í síðustu fardögum.
Séra Þórarinn var kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur prests
að Mosfelli í Grímsnesi og síðar að Hofi í Vopnafirði Jóns-
sonar. Lifir hún mann sinn ásamt 5 börnum þeirra hjóna,
og eru þau: Sigríður, gift Ara lækni Jónssyni á Brekku í
Fljótsdal, Jón bóndi i Skörðum í Reykjahverfi, Þórlialla,
gift Birni Björnssyni bankaritara í Reykjavík, Bryndís,
gift Árna Sigurðssyni fríkirkjupresti í Reykjavík, og Þór-
arinn skólastjóri á Eiðum. Fjögur börn þeirra eru látin:
Margrét, sem andaðist í bernsku, og Þuríður, Únnur og
Stefán, sem létust á fulltíðaaldri. Var séra Þórarinn hinn
ástríkasti faðir, og lagði alt kapp á að manna börn sín sem
bezt. Heimili þeira hjóna var góðkunnugt um alt Austur-
land, og þótt víðar væri leitað, fyrir gestrisni og glaðværð,
og voru þeir margir ferðamenn, sem ekki töldu eftir sér
krókinn inn í Fljótsdalinn fagra, ef þeir gátu gist á Val-
þjófsstaðarheimilinu. Meðan börn þeirra hjóna voru öll á
lífi og heima, var ekki unt að hugsa sér glaðara né glæsi-
legra heimili. Kunnur fræðimaður af Austurlandi, dr.
Stefán Einarsson háskólakennari i Ameríku, segir í Skírn-
isritgerð um mál í Fljótsdalshéraði og Austfjörðum 1930:
„Er risna þessara hjóna kunnari en frá þurfi að segja,
kafa þau um langt skeið með söng sínum og fjöri gert
Valþjófsstað að menningarmiðstöð eigi aðeins í sveitinni,
heldur og svo að segja um alt Austurland“.
Séra Þórarinn mun seint gleymast þeim, sem hezt þektu
hann. Mikill var hann vexti og þrekinn, karlmannlegur
°g höfðinglegur, og vakti mjög atliygli, hvar sem hann
fór. Líkamlegt þrek lians var svo mikið, að því var likast,
sem honum væri erfiði og áreynsla leikur einn, langt
fram eftir æfi, jafnt störfin heima fyrir sem ferðalögin
1,111 prestakallið vetur og suinar. Hraustur var liann jafn-
an til heilsu, nema siðasta missirið, þar til er hann var
kvaddur burtu, rótt og þrautalaust, án þess að þurfa að
híða dauðans í banalegu.