Kirkjuritið - 01.01.1940, Blaðsíða 32
26
Guðmundur Einarsson:
Janúai’.
bj-gt líf sitt og dauða á þessari trú og allar sínar yonir.
Þessa trú sína og von hafa þeir fengið staðfesta gegnum
reynsluna, enda eru reynslusannanirnar þær einu sann-
anir, sem vér getum fengið á þessari jörð um guðlega
hlúti, en reynslusaniianir gilda aðeins fyrir þann sem
reynir, svo að hver, sem vill fá sannanir, verður sjálfur að
mæta Kristi til þess að geta komist að raun um, hver hann
er. Þá fyrst, þegar vér höfum fundið Krist sem vorn eig-
inn lifandi frelsara og ástríkan vin og bróður, getum vér
áttað oss á því, að hann er hinn alvaldi, eilifi kærleikur,
er sannur og eilífur Guð.
Ég held, að ef mennirnir vfirleitt hefðu hugmynd um,
hvílík blessun, hvílíkur styrkleiki og gæfuuppspretta sönn
og sterk trú er, þá mundu þeir ekki liætta að leita Krists
fyr en þeir væru húnir að finna hann sem drottin sinn
og Guð, og fengju að reyna, hvílíkur kraftur streymir út frá
krossi lians inn i hverja biðjandi sál, finna, hve það er
ljúft að mega tala vin hann, er sorgir og mótlæti mæta,
og heyra, í helgri kyrð, orðin, sem andi hans hvíslar í sálu
vora, þegar liún er döpur og þreytt: „Barnið mitt, þér eru
þínar syndir fyrirgefnar.“ „Komið til mín, allir .... og
ég mun gefa yður hvíld.“
Það er þessi blessun og þessi kraftur, sem við óskum og
þráum, að allir menn megi eignast, og við vorkennum
þeim, sem ekki eiga þessa trú, sem eru reikandi og óvissir,
því að trú þeirra verður þeim ekki að neinu liði, þegar mót-
læti, sjúkdómar og sorgir koma; og hvaða von hafa þeir
loks í sjálfum dauðanum, og til hvers munu þeir flýja þá, er
þeir „standa fyrir dáuðans dyrum hórfandi fram á veg
allrar veraldar“, ef Jesús Kristur er aðeins maður eins og
vér?
Nei, vinir, við skulum ekki láta villa oss sýn, heldur
standa fastir fvrir gegn öllum árásum og efasemdum;
Jesús er drottinn, livað sem mennirnir segja og hverjn
sem þeir trúa, hann er hinn sanni eilífi Guð, þótt öll
mannanna hörn efuðust um guðdóm hans og hneyksluð-