Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 3
Kírkjuritið.
Prestastefnan 1941.
Prestastefnan
sett.
Hin árlega prestastefna var, að þessu sinni,
haldin á Akureyri og sett af biskupi landsins
í kapellu hinnar nýbygðu Akureyrarkirkju
fimtudaginn 26. júní klukkan 4 e. h. Á undan setningu presta-
stefnunnar hafði farið fram guðsþjónusta í kirkjunni, þar sem
séra Sveinn Víkingur Grímsson, sóknarprestur á Seyðisfirði,
prédikaði og lagði út af Mark. 5, 21—24 og 35—45. Var biskup
fyrir altari á undan, en vígslubiskup, séra Friðrik J. Rafnar, á
eftir og tók synoduspresta til altaris. Við guðsþjónustuna var
hvert sæti kirkjunnar skipað, og liöfðu Akureyrarbúar sýnt presta-
stefnunni þá kurteisi og virðingu að loka sölubúðum og skrifstof-
um, meðan á messunni stóð.
Prestastefnuna sóttu, að þessu sinni, auk biskups, 42 þjónandi
Prófastar og prestar, 2 fyrverandi prestar og 2 guðfræðinemar.
Við setningu prestastefnunnar las biskup Fil. 2, 1—11 og flutti
haen. Að því loknu flutti liann ávarp það og gaf skýrslu þá, er
hér fer á eftir:
Ávarp biskups og yfirlitsskýrsla hans.
Háttvirtu synodusprestar, kæru bræður og samstarfsmenn!
Ég býð yður alla hjartanlega velkomna til þessa fundar. Það
mun vera í fyrsta skifti, sem prestastefna íslands er lialdin liér á
Akureyri. Ástæðan til þess, að liún var að þessu sinni boðuð hér,
er sú, að eins og nú standa sakir er ýmislegt, sem gjörir fundarhöld
erfiðari í Reykjavík en áður. Leiðir það af liernáminu. Það er nú
erfitt að fá gott næði til slíks fundar sem þessa, vegna hins mikla
mannfjölda, sem þar er samankominn, miklir erfiðleikar um hús-
næði fyrir aðkomumenn, og liver dagur að segja má í meiri óvissu
en vér liöfum átt að venjast. Margir liafa á síðastliðnu ári óttast, að
hættan hafi vaxið á þvi, að truflun gæti orðið á daglegu lífi manna
* Keykjavík. Á slíkum tímum þótti mér viðurhlutamikið að kalla
íafn marga leiðtoga þjóðarinnar til Reykjavíkur og vanir eru að
sækja prestastefnuna. Það er nú erfiðara en nokkuru sinni áður að
segja um, hvað næsti dagur færir oss. Mér þótti þá jafnframt gott að
fá tækifæri til þess í eitt skifti að stytta nokkuð leiðir presta á