Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 17

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 17
Kirkjuritið. Prestastefnan. 255 að flutningurinn verði heimilaður af ríkisstjórninni, enda starfs- skilyrði þar fyrir prestinn betri, þótt mikil eftirsjá sé að Stað sem prestssetri, á margan hátt. — Ýmsar málaleitanir bar ég fram við fjárveitinganefnd Alþingis, bæði í samráði við kirkjumálaráðuneytið og kirkjuráð. Sumar þeirra náðu fram að ganga, aðrar ekki. Meðal annars fór ég fram á kr. 50.000.00 til viðlialds eldri prestsseturshúsum. Helm- ingur þeirrar upphæðar var veittur, samkvæmt tillögum fjár- veitinganefndar, og er biskupi, skrifstofustjóranum í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og ráðunaut ríkisstjórnar í siíkum mál- um og hr. Birni Rögnvaldssyni falið að ráðstafa því fé undir yfirumsjón kirkjumálaráðherra. Þó að þessi fjárveiting sé að vísu ekki há, bætir hún að nokkuru úr, því að í þessu skyni hefir ekk- ert fé verið fyrir hendi um skeið. — Enn flutti ég fyrir fjárveit- inganefnd óskir um, að eftirlaun fyrverandi sóknarpresta yrðu hækkuð upp í kr. 2400.00. — Alþingi varð ekki að þessu sinni við þeim óskum, en ég hygg, að margir Alþmanna hafi talið, að hér væri um sanngirnismál að ræða, og það verður að vera markmið prestastéttarinnar að fá þeim óskum fullnægt, þegar launalögin verða tekin til endurskoðunar, sem ég geri ráð fyrir að liéðan uf biði ekki lengi. Aðalástæðan fyrir synjuninni að jjessu sinni virðist vera sú, að endurskoðun launalaga embættismanna ríkis- 'ns væri í aðsígi, en ekki væri gerlegt að taka eina stétt út úr. Til liúsbygginga verða veittar sem áður kr. 24000.00, til Akur- eyrarkirkju kr. 5000.00, til prestakallasjóðs kr. 5000.00, auk fastra fiða og upphæða, sem áður hafa verið veittar til kirkjulegra þarfa. — Tvö frumvörp, sem fyrir Alþingi lágu og prófessor Magnús ■iónsson flutti, náðu ekki samþykki að jiessu sinni. Voru það frumvörp um biskupsdæmi þjóðkirkjunnar og kirkjuþing. Var hið síðara samþykt upp úr efri deild, en féll við lítinn atkvæða- niun við 2. umræðu í neðri deiid. Liggja þau til athugunar hér á Prestastefnunni, og mun ég ekki ræða þau nánar fyr en þar að keniur. Læt ég hér staðar numið við þingmálin, en vil aðeins bæta t'ví við, að mér finst samúð Alþingismanna með málefnum kirkj- nnnar fara vaxandi, og má það vera oss gleðiefni. Fyrir skömmu síðan barst Prestsekknasjóðnum vegleg gjöf frá sendifulltrúa Jóni Krabbe í Kaupmannahöfn á 100 ára afmælisdegi •nóður hans, Kristínar Krabbe, f. 25. maí 1841, dóttur Jóns Guð- niundssonar ritstjóra, er hann gefur sjóðnum kr. 10.000.00 (dansk- ar krónur), „i minningu um áhuga hennar fyrir viðgangi Prests- ekknasjóðsins og i minningu um þjóðlegt og menningarlegt starf Prestastéttarinnar fyrir ísland á umliðnum tímum“.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.