Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 23
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
261
að það muni yfirleitt horfa til eflingar íslenzkri kristni og
kirkjulífi, að biskuparnir verði tveir, en telur hinsvegar, að við
skiftingu landsins í tvö biskupsdæmi komi í ijós ýms þau atriði,
er rannsaka þurfi og atliuga sem gaumgæfilegast, óður en frá
löggjöf um þetta efni yrði gengið, svo sem um aðsetursstaði
biskupanna, stærð biskupsdæmanna hvers um sig, synodushald
og fleira. Ályktar því prestastefnan að kjósa þriggja manna
nefnd til þess að athuga frumvarp þetta, og skili hún áliti sinu
og tillögum á næstu synodus".
í nefndina voru kosnir: Séra Sveinbjörn Högnason, séra Sveinn
Víkingur og séra Friðrik J. Rafnar.
(t. Kirlcjuþingsmálið. Frumvarp það um kirkjuþing fyrir ísl.
þjóðkirkjuna, sem lá fyrir á síðasta Alþingi, en ekki hafði náð
fram að ganga, hafði í byrjun prestastefnunnar verið falið nefnd
manna til athugunar og umsagnar, og áttu sæti i henni þeir séra
Sveinbjörn Högnason, séra Hermann Hjartarson, séra Helgi Kon-
róðsson, séra Eiríkur Brynjólfsson og séra Gunnar Árnason. Svo-
hljóðandi tillaga frá nefndinni var samþ. í einu hljóði:
„Prestastefna Íslands, haldin á Akureyri 1941, lýsir því yfir.
vegna framkomins frumvarps um kirkjuþing, sem felt var á
síðasta Alþingi, að hún telur, að kirkjuþing gæti verið til bóta
í mólefnum hinnar íslenzku þjóðkirkju, ef rétt er til stofnað.
Hinsvegar telur prestastefnan, að slíkt frumvarp þurfi að fá
rækilegan undirbúning, og þá helzt í sambandi við allsherjar
endurskoðun kirkjuskipunar landsins“.
7. Um aukaverkagreiðslnr til presta urðu nokkurar umræður, og
hafði vígslubiskup, séra Friðrik J. Rafnar, framsögu í málinu.
Var samþykt að vísa málinu til kirkjuráðs.
8. Skýrsla barnaheimilisnefndar lá fyrir prestastefnunni eins
og að undanförnu, og flutti ritari og gjaldkeri nefndarinnar,
séra Hálfdan Helgason, prófastur á Mosfelli, ýtarlegt erindi um
starfsemi nefndarinnar á undanförnum árum, eftir að hafa lagt
fram reikninga Barnaheimilissjóðs fyrir árið 1940. Á síðastliðnu
ári hafði nefndin styrkt tvö dagheimili fyrir börn, annað að
Lundi í Öxarfirði og liitt í Laufahlíð í Reykjahverfi i S.-Þing.
°g ennfremur veitt styrk til aðstoðar við að koma upp vetrar-
dagheimili í Reykjavík. í sjóði við árslok voru kr. 2766.34. Mun
Kirkjuritið, áður en langt um líður, gera grein fyrir störfum
þessarar nefndar í sérstakri grein, svo að lesendur og aðrir þeir,
sem málinu eru hlyntir, geti átt kost ó því að kynnast starfsem-
inni frá byrjun, aðdraganda liennar og árangri.
Öllum fundum prestastefnunnar stýrði biskup, en guðræknis-
stundum að morgni dags stýrðu séra Friðrik .1. Rafnar vígslu-
biskup og séra Jón Þorvarðarson prófastur.