Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 28

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 28
266 ólafur Ólafsson: er engin mannleg rödd né ómar jafnast við. Vér munum á þessu sumri sem fyr mega greina margbreytileg blæ- brigði fagnaðar og klökkva í ómum hinna engilhreinu sumargesta vorra, er aldrei bregða trygð við oss, sein heilsa þessu landi voru með lofsöngvum, en yfirgefa það aftur með viðkvæmum tónum og breyttu vængjataki. Vér sjáum móðurástina, lielgasta djásn lífsins, skarta eigi síður utan vébanda mannlífsins en innan þess. Vér sjáum lambið leita hælis undir lagði móðurinnar í skjóli fyrir hreti og lireggi, eða flýja undir vernd liennar, ef það hyggur liættu á ferðum. Vér sjáum börnin beillast af blómskrúði jarðarinnar og lesa þar dulrúnir fegurð- arinnar með huga hins hreina lijarta. Þau skilja þá svo vel orðin í sálminum, sem öll íslenzk börn ættu að læra, viðtal mannsins við skaparann, þar sem segir: „Já, hvert eitt blað á blómi jarðar smáu er blað, sem margt er skrifað á um þig“. Bleikt líkið, sem brúðurin unga, er blómum skreytt. Afreks- og listamenn eru hyltir með blómvöndum. Við- kvæm vinarkveðja varðveitist bezt og varir, meðan blóm- ið angar, sem fylgdi henni. Blóm á leiði talar þöglu niáli tállausrar órofatrygðar þeirra, er dauðinn aðskilur um slund. Slíkir eru ávextir ljóssins. Slíkir eru merkisberar sumargyð junnar. Vér tökum enn að gista þetta þráða sumarland, feg- iirðar og nytja, og það er enn vort eigið land, vort eigið sviptigna, fagra land. Ljós lífsins boðar það i blessun sinni, enn sem fyr. — En þegar til mannanna kemur — bvernig reynast þeir í samanburðinum við fegurð og gæð) binnar ytri náttúru? Hvort er mannssálin þar eftirbátur eða yfirsvipur? Við þvi mun bæði mega segja: Já og nei- Vér mennirnir höfum allir i oss geisla af þeirri tegund ljóss, sem æðra er eða fullkomnara í eðli sínu en það Ijós, sem byggir upp hina ytri náttúru. Það ljós er „líf' Ijós“ — svo að ég viðbafi öðru sinni orð spekingsins, sem áður er til vitnað. — Andlega Ijósið, það ljós, sem

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.