Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 24

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 24
262 Prestastefnan. Júlí. .9. Erindi voru flutt í sambandi við prestastefnuna. Tvö þeirra voru flutt fyrir almenning í Akureyrarkirkju að kvöldi dags, hið fyrra af séra Birni Magnússyni prófasti: Eina bjargráðið og hið síðara af séra Jakob Jónssyni: íslenzka kirkjan í Vesturheimi■ Þriðja erindið var flutt á prestastefnunni sjálfri af Jóni Jónssyni fyrv. lækni: Um kirkjusöng. Ýmislegt. Þrjú heilla- og árnuðarskeyti voru send frá prestastefnunni. Hið fyrsta til hins nýkjörna ríkisstjóra íslands, Sveins Björnssonar, liið annao til dr. Jóns Helgasonar biskups í tilefni af 75 ára afmæli hans og liið þriðja til formanns Prestafélags Íslands, prófessors Ásmundar Guð- mundssonar, sem gat ekki mætt á prestastefnunni sökum lasleika. Björgvin Guðmundsson tónskáld heimsótti prestastefnuna og lék á hljóðfæri við eina guðræknisstund liennar. Á eftir mælti biskup til lians nokkurum viðurkenningar og þakkarorðum fyrir starf hans i þágu andlegrar tónlistar. Fræðslumálastjóri liafði beiðst þess, að svohljóðandi tillaga yrði lögð fyrir prestastefnuna: „Prestastefnan felur biskupi ásamt kirkjuráði að vinna með fræðslumálastjóra að samræmingu fermingar og fullnaðarprófs barna, þannig að ekkert barn verði fermt fyr en það hefir hlotið lágmarksþekkingu i námsgreinum þeim, er fræðslulög á- kveða til fullnaðarprófs“. — Samþ. að vísa málinu til biskups- Hljómleikar voru haldnir í Akureyrarkirkju á laugardagskvoJd af dómkirkjuorganista hr. Páli ísólfssyni, sem við það tækifæri vígði liið nýja liljóðfæri, sem lir. bankastjóri Vilhjálmur Þór hafði gefið kirkjunni. Hafði Páll ísólfsson boðið öllum viðstödd- um sýnódusprestum og konum þeirra á hljómleikana, og varð það þeim hin ánægjulegasta stund. Sóknarnefnd Akuregrar hafði boð inni fyrir sýnóduspresta og konur þeirra á gildaskála Kaupfélags Eyfirðinga. Ávarpaði herra Brynleifur Tobiasson mentaskólakennari gestina, þakkaði koma þeirra og árnaði kirkju landsins og starfsmönnum hennar allra heilla í framtiðinni, en biskup þakkaði og ósltaði Akureyrar- söfnuði og Akureyrarbæ gæfu og gengis. Kl. 7 á laugardagskvöldið hafði prestastefnan Prestastefnunni j0]-;g störfum. Tók þá biskup til máls.og mælt> s^‘®' til fundarmanna nokkurum kveðjuorðum, minti á alvöru timanna og ábyrgð kirkjunnar. Þvi næst las liann Matt. 14, 27—36 og flutti bæn. Og er sunginn hafði verið sálmurinn „Faðir andanna“, sagði hann prestastefnunni slitið.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.