Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 29
Kirkjuritið.
Sumarlandið.
267
byggir upp sál vora og blikar svo skært á beztu augna-
blikum lífsins — það er það, sem Kristur einn átti í svo
fíkum mæli og gaf honum vald til að segja: „Eg er ljós
Iieimsins; hver sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri,
lieldur liafa ljós lífsins“.
En þó að brot þessa Ijóss bliki oftlega í mannssálun-
um, ýmist skært, ýmist veikt, ýmist ekki, þá eru slcugg-
arnir oft yfirgnæfandi, svo að furðu sælir.
Og skuggarnir eru vissulega með meira móti nú í lífi
mannanna, lífi þjóðanna. Hann er næsta dimmur bliku-
bakkinn, sem nú stígur upp við hafsbrún vors elskaða
sumarlands. Hvort hann — blikubakkinn sá — eyðist
fyrir magni þeirrar æðri sólar, er gefur öllu líf og Ijós í
himni og lieimi, eða hvort hann spáir óveðri miklu yfir
sumarlandið kæra og hina fámennu þjóð, sem þar kýs
að búa í friði, er enn óráðið mál; það er óráðin gáta.
En eitt er víst. Hvort sem þjóð þessi smáa sleppur við
óveður ófriðarins eða ekki; hvort sem ineira syrtir að
eða upp hirtir að fullu, þá hljóta þessir tímar að breyta
sjónarmiðum og lífsstefnu þjóðarinnar. Hún hlýtur ann-
aðhvort að læra af sárri og þungri reynslu eða að verða
snortin af náð Guðs.
>,Ef Ijósið í þér er myrkur, hve mikið verður þá myrkr-
‘ð“, sagði meistarinn mikli, meistarinn Kristur. — Það er
sem beina megi þeim orðum hans sérstaklega til þeirra
nianna, sem öðrum fremur myrkva heiminn. Svo fer
fyrir mannlífinu, ef kærleiksljós Guðs fær eigi að skína
1 mannsálunum. Þá verður heimurinn umráðasvæði hins
illa valds; þá er það myrkrahöfðinginn, sem sezt að
völdum. Og hlutskipti þegna þess ríkis er þjáning, glöt-
un. En hlutskipti þegnanna á ríki Guðs er lif, friður og
gleði.
Vér kærulitlir og seinþroska menn erum tregir til að
trúa þessum mikla mun þeirra hlutskipta, sem menn-
H'nir búa sér og öðrum, fyr en vér þreifum á. Þessi knýj-
andi nauðsyn um framtið og velferð mannssálarinnar