Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 27

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 27
Kirkjuritið. Sumarlandið. 265 því sama? Hin ævarandi nýsköpun fyrir áhrifamátt ljóss- ins færir oss meira en efnisleg verðmæti. Það er og afl- gjafi sá, er myndar fegurðina á himni og jörðu. — Vor! Vorfegurð! Vér eigum vart á tungu vorri orð yfir annað stærra hugtak fegurðarinnar. Og í hrifningar alglevmi góðskáldsins, Matthíasar, fær liann ei jafnað lengra en til Paradísarlífs vorsins í stefinu þessu: Ég andaði himinsins helgasta blæ, og minn hugur svalg voðalegt þor, og öll hjarta míns dulin og deyjandi fræ urðu dýrðleg sem Ijómandi vor. Vér erum stödd í vaxandi flóðbylgju ljóssins. Á and- legu máli eru lieimkynni eilífrar tilveru stundum nefnd sumarlandið. Eigi skulum vér fylla flokk þeirra, sem reikna eigi með tilveru þess sumarlands. — Svo mikið er ljósið í tilverunni og lífið, sem það framleiðir, að eigi er viturlegt að óvirða kenningu þá, er boðast al- þjóð af íslenzka spekingnum, dr. Helga Péturssyni, um hin furðulegu lönd lifsins í „geimdjúpunum“, svo að ég noti málmynd hans, eins og hann kemst að orði i rit- gerð um það efni í einu tímariti þjóðarinnar. Þar gefur ■'íkulegt og nýtt innsæi i eðli ljóssins og lífsins sem and- legs magns, en eigi efnislegs eingöngu, í alheimsgeimi. En í sumarbyrjun ættum vér ekki að þurfa að leita út i geiminn eftir sumarlandi, því að vér búum þar sjálf. Og þó höfum vér því að lirósa aðeins í krafti þess, að það sumarland vort nýtur af því sumri — því ævarandi sumri Guðs kærleikssþlar — er enga felur skugga og lætur ekkert verða dauðanum að bráð, því sumri, þar sem hið heilaga orð fær fullnaðarstaðfestingu, orðs hans, er sagði: „Og hræðist eigi þá, sem likamann deyða, en geta ekki deytt sálina“. Sumarið er runnið yfir oss; lof sé föður lífsins, sem gefur oss það. Það er eigi aðeins tími nýsköpunar og fegurðar, sem vér nú göngum móti; það er og tími ásta °g endurfunda. Vér erum tekin að heyra fagra söngva,

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.