Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 38

Kirkjuritið - 01.07.1941, Blaðsíða 38
Júlí. Ferð um Suður-Þingeyjarprófastsdæmi. Undirbúningsnefnd kirkjufunda hefir, eins og kunnugt er, tekið það á stefnuskrá sina, að prestar og leikmenn yrðu sendir sanr.ni út um Iandið, til þess að messa og flýtja erindi, og er þetta sam- kvæmt þeirri viðleitni að efla samstarf presta og leikmanna að trúmálum. Að undirlagi nefndarinnar varð það að ráði, að við séra Gunnar Árnason á Æsustöðum færum um Suður-Þingeyjar- prófastsdæmi í þessum erindum. Við komum til Akureyrar, með áætlunarbifreið, þ. 10. júní. Prófasturinn hafði þá útvegað einkabifreið, sem skyldi flytja okk- ur milli ákvörðunarstaðanna, en það var fyrirhugað að koma i allar kirkjur, að undanteknum Þönglabakka og Brettingsstöðum. Miðvikudaginn 11. júní var starfið byrjað, á Svalbarðseyri. Til- liögunin var hin sama á öllum stöðunum, og þannig, að séra Gunnar flutti messu, en að henni lokinni flutti undirritaður er- indi. Að því loknu var mönnum gefinn kostur á fyrirspurnum, athugasemdum og umræðum um kirkju- og trúmál. Á Akureyri liittum við séra Þorvarð Þormar í Laufási, og fylgdi liann okkur um prestakall sitt. Frá Svalbarði vari haldið að Lauf- ási um kvöldið, þ. 11. júní, en daginn eftir var messað í Grenivík. Þaðan var aftur haldið að Laufási, en þar var messað á föstu- daginn 13. júní. Þann sama dag skyldi og messað að Draflastöð- um, en inflúenza var komin í sóknina, og varð því ekki af messu. Héldum við nú að Vatnsenda, til séra Þormóðs Sigurðssonar, en er þangað kom, færði prestur okkur þau tiðindi, að samkomubann væri ákveðið í Bárðardal, vegna inflúenzu. Daginn eftir, 14. júni, fylgdi séra Þormóður okkur að Illugastöðum og Hálsi, og var messað á báðum stöðum. Daginn eftir, sunnudaginn 15. júní, liafði verið ákveðið að messa á Lundarbrekku, og átti þar að fara fram ferming. En þar sem þetta tækifæri var nú glatað, var ákveðið að fara að Grenjaðarstað. Var það samkvæmt ósk sóknarprestsins, séra Þorgríms Sigurðssonar, því að þann dag skyldi fara frani ferming, og mátti búast við góðri kirkjusókn. Er þangað kom, liafði prestur orðið að aflýsa fermingunni vegna samkomubanns, sem einnig náði yfir Reykjadal. En bann hafði í þess stað boðað messu á Þverá í Laxárdal þá um daginn, síðdegis. Var haldið þangað) og messað, en um kvöldið fórum við að Skútustöðum í þeirri von,

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.