Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 5

Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 5
Kirkjuritið. Prestastefnaii. 243 ekki sízt stað vegna margvíslegra truflana í viðskiftalífinu. Stríðs- gróðamennirnir þjóta upp og fjárgræðgi magnast. Peningar eru taldir í háum upphæðum, en missa um leið hið raunverulega gildi sitt. Á slíkum tímum er hinum innra manni æfinlega hættara en ella, og margvíslegar freistingar eru lagðar í veg hans. Það er al- kunna, að hér á landi og þá einkum í kaupstöðunum er siðferðis- ástandið lakara en áður var, og i þvi sambandi hafa komið upp ýms vandamál, sem kirkjan hlýtur að láta til sín taka. Hún á á öllum tímum að vera liinn dýrmætasti vörður siðgæðis og góðra siða, og engin leið er fundin, sem öruggari er til þess að skapa þjóðum siðgæðisþrótt en trúin á Guð og meðvitundin nm, að mað- nrinn sé eilif vera, sem nppsker eins og hann sáir og beri ábyrgð á breytni sinni bæði til orða og æðis. Þessvegna er það hið mikil- vægasta mál, að fólkið í landinu sinni kirkju og kristindómi, að ibúar landsins venji komur sínar í kirkjurnar og finni sjálfa sig við ihugun hinna eilífu sanninda, sem blasa við í fagnaðarcrindi Jesú Krists, opinberun hins eilífa og algóða föður, í honum. Já, Idutverk kirkjunnar er mikið og vandasamt. Það ber mikla nauð- syn til, að vér þjónar hennar gleymum sjálfum oss nú í starfinu fyrir ríki Guðs. Boðun kristindómsins þarf að sitja í fyrirrúmi. Kristindómurinn er lífæð hins andlega lífs þessarar þjóðar, eins og allra ])jóða. Kirkjan hefir líka um þessar mundir liér á landi öði- ast annað stórt verkefni, sem meira kallar að en áður, en það er að varðveita og vernda þjóðerni og tungu og menningu ísienzku þjóðarinnar, alt það, sem oss er lielgast og dýrmætast. Og mikil gifta væri það fyrir kirkju lands vors, að komandi kynslóðir gætu sagt, að vér hefðum þekt vitjunartima vorn og verið á verði. Að ófriðnum mikla loknum, og vér vonum og biðjum þess, að sá dagur megi sem fyrst renna upp, að friði verði liringt yfir þenna heim, mun nýtt endurreisnarstarf liefjast um víða veröld. Ég lít svo á, að framtið islenzku kirkjunnar yfirleitt í þessari veröld sé undir því komin, hvern þátt kirkjan á i þvi starfi að byggja upp, skapa nýjan heim, sem bjartari er og betri en sá, er vér nú tifum í. Til þess að oss þjónum íslenzku kirkjunnar geti tekist að rækja skyidur vorar í því hlutverki, vil ég leggja sér- staka áherzlu á, að ég tel eitt allra mikilvægasta skilyrðið, að fullkomin eining riki meðal vor. Þeir, sem á slíkum tímum, sem nú ganga yfir, ala á deiluefnum og stofna til flokkadrátta innan stéttarinnar, eru i raun og veru liðhlaupar. Á meðal vor á að ''íkja einn hugur, ein sál um að innræta þjóð vorri heilaga trú ng kenna henni hlýðni við vilja Guðs og að lifa samkvæmt sið- gæðiskröfum kristindómsins. Verkefnin, sem nú kalla að, verða

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.