Kirkjuritið - 01.07.1941, Side 6

Kirkjuritið - 01.07.1941, Side 6
211 Prestastefnan. Júlí. ekki unnin, nema því að eins að oss takist að fylgja kröfu Jesú Krists, er hann sagði: „Allir eiga þeir að vera eitt“. Ég vil óska þess, að þessi prestastefna mætti bera gæfu til að að sameina oss betur en nokkuru sinni áður, og að vér mættum öðlast meira af hugarfari lærisveinsins — liins sanna lærisveins, sem öllu vill fórna fyrir hann, sem kom til þess að frelsa menn- ina og gaf líf sitt fyrir þá. Ég vil þá, eins og venja er til, gefa yður yfirlit yfir atburði þá, sem gerst hafa á synodusárinu og minnast nokkurum orðum á þau mál, sem á döfinni hafa verið og varða starf vort og kirkju lands vors. Einn þjónandi prestur hefir látist á árinu. Er það séra Tryggvi Ii. Iívaran sóknarprestur á Mælifelli. Bar dauða lians að fyr en oss varði, því að hann var enn maður á bezta aldri. Hann lézt 5. ágúst f. á. 48 ára gamall, fæddur 31. maí 1892 að Undirfelli i Vatnsdal. Foreldrar hans voru Hjörleifur prófastur Einarsson og kona hans Björg Einarsdóttir. Hann útskrifaðist úr hinum al- menna mentaskóla í Reykjavík vorið 1913, en embættispróf í guðfræði tók liann í febrúar 1918, og í maímánuði sama ár réðist hann aðstoðarprestur til séra Sigfúsar Jónssonar að Mæli- felli i Skagafirði og var vígður 2. júní 1918. Árið eftir fékk hann veitingu fyrir Mælifellsprestakalli að afstaðinni kosningu. Þegar Glaumbæjarprestakall í Skagafjarðarprófastsdæmi var auglýsl til umsóknar árið 1937, sóttí séra Tryggvi um prestakallið og hlaut kosningu. Ekki kom Jjó til þess, að liann settist í Glaumbæ, en þjónaði þó því prestakalli ásamt Mælifellsprestakalli til dauða- dags. Séra Tryggvi var ágætum hæfileikum gæddur, vel máli farinn, skáldmæltur vel og sérlega sönghneigður maður, enda söng- maður góður. Vinsæll var hann, enda hjálpfús og liafði næmt auga fyrir því, sem bágt var eða eittlivað amaði að. Kvæntur var Tryggvi Önnu Grímsdóttur, Thorarensen frá Kirkjubæ á Rangárvöllum. Eiga þau tvær dætur og einn fóstur- son, sem öll eru á lífi. Hann átti sína miklu kosti, en einnig sínar veiku hliðar, eins og vér allir. Mér er kunnugt um, að innra fyrir átti hann þrá eftir því að vera sterkur og láta gott af sér leiða, og veit ég, að sóknarfólk hans og vér vinir hans berum liarm í liuga við fráfall lians. Virðing vora vottum vér minningu hans með því að rísa úr sætum. Úr hópi fyrverandi sóknarpresta eigum vér að sakna sér Pét- urs Helga Hjálmarssonar frá Grenjaðarstað. Hann lézt i Reykjavik

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.