Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 12

Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 12
250 Prestastefnan. Júlí. Viðvíkurprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi og séra Halldór Kolbeins í Mælifellsprestakalii i sama prófastsdæmi. Þá hefir séra Ragnar Benediktsson verið skipaður sóknarprest- ur að afstaðinni kosningu í Hrunaprestakalli i Árnesprófasts- dæmi, frá 1. júní þ. á. — Hinn 15. þ. m. bættust kirkjunni 4 nýir starfsmenn. Voru þeir vígðir til prestsþjónustu í dómkirkju landsins þann dag. Eru ]iað þeir séra Magnús Már Lárusson, er vígðist sem settur prest- ur til Breiðabólstaðarprestakalls á Skógarströnd i Snæfellsness- prófastsdæmi. Hann er fæddur i Kaupmannahöfn 2. sept. 1917. Foreldrar hans eru Jónas Lárusson bryti og kona bans Maria Gullström. Séra Magnús tók stúdentspróf við hinn almenna mentaskóla Reykjavikur vorið 1937 og embættispróf í guðfræði við Háskóla íslands 21. maí s. i. Séra Sigurdur Kristjánsson sem settur prestur í Hálsprestakalli í Fnjóskadal. Hann er fæddui' 8. janúar 1907. Eru foreldrar hans Kristján Jónsson bóndi á Skerðingsstöðum í Barðastrandarsýslu og kona hans Agnes Jóns- dóttir. Lauk hann stúdentsprófi í mentaskólanum á Akureyri vorið 1937 og guðfræðiprófi við guðfræðideild Háskóla íslands 21. maí s.I. Séra Stefán Erlendur Snævarr sem settur prestur í Valiaprestakalli í Eyjafjarðarprófastsdæmi. Hann er fæddur í Húsavík í Þingeyjarsýslu 22. marz 1914. Foreldrar hans eru Valdimar V. Snævarr skólastjóri i Neskaupstað og kona hans Stefanía Erlendsdóttir. Stúdentsprófi lauk hann við Mentaskól- ann á Akureyri vorið 1936 og guðfræðiprófi við Háskóla íslands i maí f. á. og séra Pétur Ingjaldsson, er að afstaðinni kosningu var 1. júní s.l. skipaður sóknarprestur í Höskuldsstaðaprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Foreldar hans eru Ingjaldur Þórðar- son og kona hans Guðrún Pétursdóttir. Hann útskrifaðist úr hinum almenna mentaskóla í Reykjavík vorið 1933 og lauk em- bættisprófi í guðfræði við Háskóla íslands í janúar 1938. Stund- aði hann næstu árin aðallega kenslustörf og gaf sig jafnframt nokkuð að kristilegu og kirkjulegu starfi, þar til er hann fékk veitingu fyrir Höskuldsstaðaprestakalli. Allir eru hinir ungu nývígðu prestar ókvæntir. Nú, er þeir takast á hendur þjónsstarfið i kirkju Krists, vil ég í hennar nafni bjóða þá alla hjartanlega velkomna og vona og bið, að þeir megi eiga fyrir höndum langt og blessunarrikt starf fyrir þjóð vora. — Nú í sumar hafa þrir guðfræðistúdentar verið sendir út i óveitt prestaköll, eins og tiðkast hefir tvö undanfarin sumur. Eru það stud. theol. Ingólfur Ástmarsson i Glaumbæjarpresta- kall í Skagafjarðarprófastsdæmi, stud. theol Jón ísfeld 1

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.