Kirkjuritið - 01.07.1941, Síða 18
256
Þrestastefnan.
Júli.
Prestakallaskipunarnefndin lauk störfum, áður en síðasta Al-
þingi liófst, og er frumvarp hennar prentað ásamt greinargerð, og
hefir það verið sent öllum prestum landsins. Úr ýmsum söfn-
uðum, sem hlut áttu að máli, komu fram nokkurar óánægjuraddir
og áskoranir úr 3—4 prestaköllum, sem sameina átti, sendar
Alþingi. Það var vandi að vinna þetta verk, sem fyrir nefndinni
lá, ef til vill miklu meiri vandi en unt er að gera sér grein
fyrir, án þess að taka þátt í verkinu. Við, sem aðalstarfið unn-
um í nefndinni, fundum þetta og kom ekki til liugar, að við
kæmumst hjá aðfinslum með starf okkar. En við reyndum að
standa á verði fyrir kirkjuna og söfnuði landsins, eins og við
kunnum bezt. Og greinargerð okkar fer öll í þá átt að glæða
skilning Alþingis á því, að um fækltun presta að nokkru veru-
legu ráði geti ekki verið að ræða, þjóðin vilji hana eklci og bíöi
tjón við, að starfsmönnum kirkjunnar sé fækkað. Áður höfðu
tvívegis með nokkurra ára millibili komið fram mjög eindregnar
tillögur um fækkun presta á Alþ'ngi, eins og öllum er kunnugt.
Þótt prestastéttin og söfnuðir landsins í heild væri slíkum breyt-
ingum yfirleitt andvíg, komu þó fram margar raddir, bæði úr
hópi presta og á kirltjulegum fundum einnig, að rétt væri að
taka til yfirvegunar sameiningu, þar sem aðstæður allar hefðu
breyzt frá 1907, að lögin um skipun prestakalla gengu í gildi,
t. d. með stórum hættum samgöngum, breytingum á tölu íbúa J
prestaköllum o. s. frv.
Árið 1907 voru prestaköllin að lögum ákveðin 105. Nefnd sú,
er um mál þessi fjallaði á Alþingi 1935, lagði til að prestaköllin
yrðu 59 og 61 þjónandi prestur. Nokkurum árum síðar kom frani
á Alþingi tillaga um, að prestaköllin yrðu 88, og sýnir þetta glögg-
lega, hvernig afstaða þingsins var til þessara mála. Eftir tiUög-
um okkar eru prestaköllin 107, en prestarnir 113. Við leggjuni
til, að 7 prestaköll verði sameinuð öðrum prestaköllum, en J
stað þeirra komi að Reykjavík meðtalinni 8 ný prestaköll. Eins
og allir sjá, er hér ekki um neina fækkun að ræða. Frunivarp
okkar var ekki lagt fyrir siðasta þing, og varð það að samkoinu-
lagi milli mín og kirkjumálaráðherra. En ég geri fastlega J'ú<'*
fyrir, að næst, er Alþingi verður kallað saman, verði það tekið
til meðferðar. Frumvarpið liggur nú fyrir prestastefnunni, 0S'
mun ég þvi ekki fara fleiri orðum um það i þessu yfirliti ininu-
Súlmabókarnefndin hefir starfað síðastliðið ár, eftir því setn
liún hefir fengið því við komið, bæði nefndarmenn hver i srnu
lagi og allir sameiginlega um nokkurt skeið á siðastliðnum vetri-
Ég gjöri ráð fyrir, að hún muni ljúka störfum á þvi synódusari,
sem nú hefst.