Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 42

Kirkjuritið - 01.07.1941, Page 42
280 S. E.: Hraungerðismótið. Júli. mótsins, cr heim ætluðu um kvöldið, en þeir voru allmargir, er aðeins dvöldust á mótinu yfir sunnudaginn. Kl. 5 hélt Ólafur Ólafsson kristniboði samkomu og gerði þessi orð að umtalsefni: Hjálpræðið tilheyrir Guði vorum og lamb- inu. En kl. 9 hafði séra Bjarni Jónsson vígslubiskup biblíulestur og flutti hið snjallasta erindi. Loks var um kvöldið miðnætursamkoma með svipuðu sniði og hið fyrra kvöld. Mánudagurinn hófst með biblíulestrarsamkomu, og talaði cand. theol Ástráður Sigursteindórsson út af þessum orðum: Vakið og biðjið, svo að jjér fallið ekki i freistni. Síðar um daginn var barnasamkoma fyrir börn úr sveitinni, mjög fjölsótt. Sigurður Einarsson dósent flutti erindi þennan dag, er hann nefndi: „Hvernig drottinn kemur1' og séra Magnús Guðmundsson í Ólafsvík erindi, er hann nefndi: „Lofa j)ú drottin, sála mín“. Kl. 5 e. h. bófst altarisganga fyrir mótgesti, og skiftu altaris- gestir liundruðum báða dagana. Mótinu lauk með kveðjustund í kirkjunni kl. 7M; um kveldið, og hélt síðan liver til síns heima. Átta prestar sóttu mótið og sennilega á fimta hundrað manns, er flest var á sunnudag. Hraungerðismótin eru jiegar orðinn einn merkasti kirkjulegur viðburður hvers árs, og þetta Hraungerðismót fór þannig fram og var háð i þeim anda kristilegs samfélags, að það mun verða þeim blessuð og ógleymanleg minning, er það sóttu. Sigurður Einarsson. Biblían og tungumálin. Nýlega hefir það verið reiknað út, á live margar tungur Biblían hefir verið þýdd eða einstök rit hennar. Er það sem hér segh': Öll Bibtían .... á 182 tungumál Alt Nýja. testam. .. - 223 að auk heilt rit a. m. k. .. - 547 - Iíaflar aðeins .... - 87----- Atts eru þetta 1039 tungumál

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.