Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 10

Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 10
8 KIRKJURITIÐ andlegu lífi í persónulegu samfélagi við hann og lýsa þeirri reynslu sinni svo, að Ijósi slær á allar aldir. Vér skulum enn fremur líta oss nær í tímanum, til næstu kynslóðar á undan, foreldra og annarra, sem við þekktum bezt og mátum mest. Var það ekki ljós kristin- dómsins, sem bar þeim birtu og mótaði lífsskoðun þeirra, hið einfalda og hreina fagnaðarerindi um föðurást Guðs. Það lýsti yfir vegferð þeirra. 1 trausti til þess vildu þau lifa og deyja í Jesú nafni. Og reynsla vor margra við föð- urkné eða móður er í innsta eðli sínu hin sama sem Matt- híasar, er hann kveður um móður sína: Þá lærði ég allt, sem enn ég kann um upphaf og enda, um Guð og mann og lífsins og dauðans djúpin. Mitt andans skrúð var skorið af þér. Sú skyrtan bezt hefir dugað mér við stormana, helið og hjúpinn. Þessir geislastafir eru allir frá hinni sömu uppsprettu. Þegar augað fylgir þeim, lítur það sólina, ljós sannleikans. Vér sjáum, að það er enn þá meira en að Kristur boði oss sannleikann. Hann er sjálfur sannleikurinn, mann- sonurinn, Guðs-sonurinn. Þótt vér hljótum að fyrirverða oss djúpt fyrir honum og andvarpa eins og Símon: Far frá mér, herra, því að ég er maður syndugur, þá stefnir samt til hans vor innsta og helgasta þrá. Og í sál vorri bíða strengir þess, að hann snerti þá. Hann einn er veg- urinn, sannleikurinn og lífið, Ijómi dýrðar Guðs og ímynd veru hans. Frelsarinn, leiðtoginn, fyrirmyndin, um tíma og eilífð. Ljós sannleikans verður að skína hinni íslenzku þjóðar- sál. Þrátt fyrir allar ytri framfarir er andlegt líf þjóð- anna í hættu statt. Heimsstyrjaldimar og allar þær hörm- ungar, sem þeim hafa fylgt, hafa hnekkt kjarki þeirra og bjartsýni, og er það skiljanlegt. Þeim hefir daprazt

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.