Kirkjuritið - 01.01.1952, Page 15
SKÍN LJÓS YFIR LANDI
13
Við birtuna og varmann frá ljósi heimsins getur ísland
orðið sann-nefnd Sólareyja. Það getur orðið það, sem því
var ætlað að verða við upphaf landnáms þess: Unaðs-
reitur í Guðs ríki, öllum til blessunar, er hann byggja, og
svo öðrum löndum og þjóðum. En gæt þess vel, þú sem
orð mín lest, að þig má ekki vanta til að vinna að því.
1 þeim skilningi eiga allir að vera prestar. Island væntir
þess nú á örlagaríkum tímamótum, að hver maður gjöri
skyldu sína. Stefn hærra með hækkandi sól. Krjúp frammi
fyrir Ijósi heimsins og bið af allri sál:
Ljáðu, Drottinn, ljós og yl
landinu mínu kalda,
og lof mér, því mig langar til,
á ljósinu einu að halda.
Gleðilegt ár yður öllum.
Skín ljós yfir landi.
Ásmundur Guðmundsson.
Gjafasjóður Niemöllers.
í Þýzkalandi hefir nýlega verið stofnaður sjóður á vegum
evangelísku kirkjunnar og er sjóður þessi kenndur við Nie-
möller, hinn fræga kennimann. Hann er í augum þýzku þjóðar-
innar ímynd þess, sem kirkjan hefir orðið að þola á síðustu
árum, til þess að geta boðað fagnaðarerindið frjálst og hreint
og gætt ábyrgðar gagnvart samtíðinni.
Sjóði þessum er ætlað að styrkja evangelísku kirkjurnar,
bæði í Þýzkalandi og víðar um heim.
Prestaskortur í Svíþjóð.
Prestaskortur er nú nokkur í Svíþjóð, og hefir verið reynt að
bæta úr því með því að fela leikmönnum að gegna prestsemb-
ættum, einkum þó sem aðstoðarprestar. Ó. J. Þ.