Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 18

Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 18
Séra Stefán Baldvin Kristinsson fyrrum sóknarprestur og prófastur á Völlum. Séra Stefán Baldvin Krist- insson var fæddur að Yztabæ í Hrísey 9. des. 1870. Foreldr- ar hans voru hjónin Kristinn Tryggvi Stefánsson Baldvins- sonar prests Þorsteinssonar á Upsum og Kristín HólmfríÖ- ur Þorvcddsdóttir Gunnlaugs- sonar bónda að Krossum á Árskógsströnd. Hann var þannig af kunnu atgjörvis- fólki kominn í báðar ættir. Sáust þess glögg merki í lík- amlegu og andlegu atgjörvi hans, að hann var af góðum og kjarnmiklum stofni runn- inn, — og hygg ég, að í honum hafi sameinazt það bezta úr báðum þessum fjölmennu og stóru ættum. Bernskuheimili hans að Yztabæ var ætíð fjölmennt og stórt heimili, enda þekkt víða fyrir atorku, dugnað og höfðingsskap. Þar voru stunduð jöfnum höndum búskap- ur og útgerð og hvorttveggja sótt af miklu kappi. Þó að þar væri ekki opinber veitingastaður og mönnum finnist nú sem Yztibær sé ekki í þjóðbraut, þá var þar ætíð mjög gestkvæmt, því að það var mjög algengt, að margar báts- hafnir kæmu í land til að fá sér kaffi og aðra hressingu, meðan „legið var yfir línu“, sem kallað var. Hið mann-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.