Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 19
SÉRA STEFÁN B. KRISTINSSON
17
marga heimili með þeirri glaðværð og léttleika, er því
fylgdi, — hinar tíðu gestkomur og hin nána snerting við
athafnalífið hefir eflaust snemma mótað hinn unga svein.
Sjómennirnir fluttu með sér sjávarseltu og ævintýr. Faðir
hans, hinn dugmikli og ákafi veiðimaður og selaskytta,
hefir og kunnað frá mörgu skemmtilegu af sjónum að
segja, enda var það svo, að sjórinn tók snemma hug séra
Stefáns, og átti hann að miklu leyti alla ævi. Þótt hann
væri búsettur í sveit um 40 ár ævi sinnar og ræki þar
umfangsmikinn búskap, gleymdi hann ekki sjónum, held-
ur leitaði þangað mörgum stundum sér til hvíldar og hress-
ingar af innri þörf. Það má reyndar furðulegt heita, svo
mjög sem hugur hans stefndi til sjávar, að hann skyldi
velja sér það lífsstarf, sem hann gerði, og rækja það með
jafnmikilli prýði og raun varð á. En ef menn undrast það,
verða menn að gæta þess, að séra Stefán var enginn miðl-
ungsmaður. Hann var um allt, eða flestallt, sem til hins
betra horfði, langt ofan við meðallag. Gáfumar, atorkan
og dugnaðurinn var svo mikill á öllum sviðum, að vel hefði
nægt fleirum en einum til að ná meðallagi.
Ekki er mér með öllu ljóst, hvað beint hefir huga séra
Stefáns inn á þær brautir, er hann gekk. Vera má, að
einhverjir vandamenn hans og vinir, sem varir hafa orðið
hinna miklu gáfna hans, hafi ýtt undir hann og komið
honum af stað. Ég sé þess merki í sjálfsævisögu séra Frið-
riks Friðrikssonar, að hann telur sig ef til vill hafa átt
þátt í því að vekja löngun séra Stefáns til skólagöngu og
lærdóms. En ekki minnist ég, að hann sjálfur nefndi nokk-
urn sérstakan í því sambandi, þótt vel geti svo hafa verið.
Ég held, að það hafi nokkuð komið af sjálfu sér. Ég hygg,
að hann hafi ungur fundið innri þörf hjá sér til að læra
meira og vita meira en algengt var á þeim tímum um
flesta þá, er hann umgekkst. Ég minnist þess, að hann
sagði mér frá því, að hann hefði oft haft með sér bækur
í hjásetu, og eins, er hann vakti yfir túninu heima hjá sér.
Hann taldi margar þessar stundir, er hann sat hjá ánum
2