Kirkjuritið - 01.01.1952, Page 25
SÉRA STEFÁN B. KRISTINSSON
23
Séra Stefán var settur prófastur í Eyjafjarðarprófasts-
dæmi í ágúst 1927 og skipaður prófastur 20. marz 1928.
Lausn frá prófastsstörfum fékk hann 1. jan. 1941. Prófasts-
störf sín rækti hann með sömu skyldurækninni og trú-
mennskunni sem önnur störf sín. Hann var strangur og
eftirgangssamur, og nákvæmur um skýrslugerðir og reikn-
ingshald. öll var embættisfærsla hans nákvæm og emb-
ættisbækur hans eins, og svo réttar sem kostur var á.
Hinn 1. júní 1899 kvæntist séra Stefán eftirlifandi konu
sinni, frú Solveigu Pétursdóttur Eggerz. Það er varla hægt
að skrifa svo um séra Stefán, prestskap hans og þjónustu,
að eigi sé frú Solveigar getið um leið. En það get ég þó
eigi gert að þessu sinni. Ég vil aðeins taka það fram, að
samhentari og betri eiginkonu hefði hann varla getað hlot-
ið. Og hann taldi það sjálfur, að ef eitthvað væri þakkar-
eða lofsvert við sína þjónustu og sitt starf, þá bæri ekki
síður að þakka henni það en sér sjálfum. Honum var eng-
in launung á því, að mestan þátt, næst Guðs blessun og
Guðs hjálp, átti hún í því, hversu gæfuríkur og ástsæll
og elskaður hann var. Starfs- og lífssaga hans sjálfs er
um leið starfs- og lífssaga frú Solveigar. Slík mannkosta-
og gæðakona sem hún er, hlýtur ósjálfrátt að færa bæði
sína nánustu og þá, sem hún umgengst, á Guðs vegu. Ég
læt þau ummæli nægja að sinni og bið velviljaða lesend-
ur að lesa hennar þátt í starfi hans inn í málið.
Þau hjónin eignuðust 7 börn og eru 5 þeirra á lífi:
1. Pétur Eggerz, kvæntur Sigurveigu Þorgilsdóttur frá
Sökku, búsettur í Þýzkalandi.
2. Kristinn Tryggvi, læknir, kvæntur Oddgerði Geirs-
dóttur frá Múla, búa í Reykjavík.
3. Sœmundur, stórkaupmaður í Reykjavík, kvæntur
Svanhildi Þorsteinsdóttur skálds Erlingssonar.
4. Sigríður, gift Birgi Thorlacius, forsetaritara í Reykja-
vík.
5. Ingibjörg, gift Caspar Peter Holm. Þau búa í Hrísey.